Enn ein lægðin er að skella á landið í dag. Spáð er norðvestanhríð norður- og vesturlands í dag, en stórhríð á Ströndum og Vestfjörðum og rok eða ofsaveður við Breiðafjörð. Gefnar hafa verið út appelsínugular og gular viðvaranir nánast um land allt. Hægt er að skoða spánna nánar á vef Veðurstofu Íslands.
Á höfuðborgarsvæðinu er spáð norðvestan hvassviðri og éljagangi. Gefin hefur verið út gul viðvörun sem gildir frá klukkan 13 til miðnættis.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur fólk til að sýna aðgát og ganga frá lausum munum til að forðast tjón.
„Einnig vill lögreglan beina þeim tilmælum til verktaka að ganga vel frá byggingar – og framkvæmdasvæðum sínum og girðingum í kringum þau,“ kemur fram í tilkynningu lögreglu.
Lögreglan á Vestfjörðum hefur einnig gefið út tilkynningu.
„Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna í samráði við lögreglustjórana á Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Vesturlandi og á Vestfjörðum, í þessum umdæmum.
Aftakaveður verður á Vestfjörðum sem mun ná hámarki seinnipartinn.
Búast má við röskun á samgöngum og ekki ráðlagt að ferðast á milli byggðakjarna. Við hvetjum fólk til þess að fylgjast með veðri á vedur.is og færð á vegag.is.
Ef eitthvað lauslegt dót á eftir að koma inn eftir sumarið er um að gera að drífa í því að koma því inn strax í morgunsárið svo ekki hljótist tjón af.“