Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir í samtali við Morgunblaðið að hún búist við að þær samkomutakmarkanir sem nú eru í gildi verði aflétt í næstu viku.
Hún tekur undir með Þórólfi Guðnasyni, sóttvarnalæknis, sem segir að skynsamlegast sé að fara hægt í afléttingar.
Hún segir að kosningabaráttan muni ekki hafa áhrif og að samstaða sé innan ríkisstjórnarinnar varðandi samkomutakmarkanir.
Samkvæmt núgildandi reglum mega 200 manns koma saman en 500 á viðburðum skyldu allir vísa fram neikvæðu hraðprófi. Í dag byrjar heilsugæslan að bjóða fólki hraðpróf sem gilda fyrir téða viðburði.