Nokkur fjöldi fólks mælti sér mót við heilbrigðisráðuneytið í hádeginu í dag til að mótmæla bólusetningum barna gegn Covid-19. Undanfarna tvo daga hefur birst heilsíðuauglýsing í Morgunblaðinu þar sem athygli er vakin á málstaðnum og mótmælum dagsins. Þar kemur meðal annars fram að skipuleggjendur mótmælana eru þau Hrólfur Hreiðarsson, Martha Ernstdóttir, Kristín Johansen, Þórdís B. Sigurþórsdóttir og Þröstur Jónsson.
„Covid-19 bóluefnin eru á rannsóknarstigi til ársins 2023. Aukaverkanir vegna þeirra eru fleiri og alvarlegri en okkur var sagt í upphafi. 24 tilkynningar um aukaverkanir hafa borist Lyfjastofnun í hópnum 12-17 ára, þar af fimm alvarlegar. Tvö börn hafa þurft sjúkrahúsinnlögn og tilfelli hjá þremur börnum voru metin klínískt mikilvæg. Aðeins hluti hópsins 12-15 ára hefur þegar verið bólusettur. Til samanburðar hefur ekkert barn eða ungmenni þurft að leggjast inn á sjúkrahús vegna Covid-19 hér á landi,“ segir í auglýsingunni sem birtist í morgun.
Ljóst er að auglýsingarnar báru einhvern árangur því fólk mætti á mótmælin í dag. Þá mættu þangað einnig fólk sem mótmælti mótmælunum, eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan.
Hér fyrir neðan má svo sjá fleiri myndir af þeim sem mótmæltu bólusetningunum fyrir utan heilbrigðisráðuneytið í dag: