Boðað hefur verið til mótmæla í hádeginu í dag fyrir utan heilbrigðisráðuneytinu Skógarhlíð 6, en þar er fyrirhugað að mótmæla bólusetningu barna.
Til að kynna mótmælin hefur nú í tvígang birst heilsíðuauglýsing í Morgunblaðinu til að vekja athygli á málstaðnum. Þar kemur fram að skipuleggjendur viðburðarins eru: Hrólfur Hreiðarsson, Martha Ernstdóttir, Kristín Johansen, Þórdís B. Sigurþórsdóttir og Þröstur Jónsson.
Í auglýsingunni segir:
„Covid-19 bóluefnin eru á rannsóknarstigi til ársins 2023. Aukaverkanir vegna þeirra eru fleiri og alvarlegri en okkur var sagt í upphafi.
24 tilkynningar um aukaverkanir hafa borist Lyfjastofnun í hópnum 12-17 ára, þar af fimm alvarlegar. Tvö börn hafa þurft sjúkrahúsinnlögn og tilfelli hjá þremur börnum voru metin klínískt mikilvæg. Aðeins hluti hópsins 12-15 ára hefur þegar verið bólusettur
Til samanburðar hefur ekkert barn eða ungmenni þurft að leggjast inn á sjúkrahús vegna Covid-19 hér á landi“
Að lokum er í auglýsingunni spurt: Er áhættan meiri en ávinningurinn?
Skipuleggjendur sem hafa áður vakið athygli
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem auglýsing birtist í Morgunblaðinu þar sem talað er gegn bóluefni. Einn skipuleggjenda mótmælanna, Vilborg Björk Hjaltested, kostaði auglýsingar í maí þar sem fólk var hvatt til að tilkynna um aukaverkanir vegna bólusetninga en í kjölfarið gagnrýndi Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, auglýsinguna og sagði upplýsingar um aukaverkanir sem þar fram komu bæði óstaðfestar og í einhverjum tilvikum kolrangar.
Annar skipuleggjenda mótmælanna, Þórdís Björk Sigurþórsdóttir, hefur einnig tlað mikið gegn sóttvarnaraðgerðum en hún vakti athygli á síðasta ári eftir að hún sakaði lögregluna um gluggagægjur, en lögregla þvertók fyrir þær ásakanir. Um var að ræða samkvæmti barns Þórdísar þar sem grunur lék á að fjöldi gesta hafi farið umfram fjöldatakmarkanir sóttvarnaaðgerða.
Lögreglan vísar fréttum af „gluggagæji“ á bug – Húsráðandinn hreytti fúkyrðum í lögreglu
Kristín Johansen er einnig meðal skipuleggjenda samkvæmt auglýsingunni en hún gagnrýndi í júní meintað bólusetningáróður sem nemendum Flataskóla var sýndur. Benti hún í kjölfarið á að það væri foreldra að ákveða hvort börn væru bólusett og óforsvaranlegt að sýna börnum „hræðsluáróður“ í skólum.
Samkvæmt viðburðarsíðu mótmælanna á Facebook hafa 170 boðað komu sína á mótmælin og að auki hafa 262 lýst yfir áhuga. Þar hafa skipuleggjendur einnig óskað eftir framlögum til að kosta birtingu auglýsinga í Morgunblaðinu sem og lesna auglýsingu hjá Ríkisútvarpinu.