Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir manni að nafni Guðbrandur Ólafsson. Síðast er vitað um ferðir hans í nágrenni við Selfoss seinni part dags í gær, miðvikudaginn 4. ágúst.
Guðbrandur var þá á bifreið að gerðinni Kia Sorento með númerinu YB-720 og er bifreiðin blá að lit.
Ólafur er talinn vera klæddur í svartan jaka og bláar gallabuxur.