fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Svona náðu Bubbi og Eiríkur sáttum eftir atvikið umdeilda – Svanur segist hafa átt stóran þátt í því – „Ég fór ekkert að grenja“

Máni Snær Þorláksson
Þriðjudaginn 3. ágúst 2021 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það vakti gríðarlega athygli þegar frétt með fyrirsögninni „Bubbi fallinn“ birtist á heilsíðu í tímaritinu Hér & nú árið 2005. Í fréttinni mátti sjá einn ástsælasta tónlistarmann þjóðarinnar, Bubba Morthens, sitjandi í bíl með sígarettu í kjaftinum. Ritstjóri tímaritisins var dæmdur í Hæstarétti til þess að greiða Bubba 700 þúsund krónur í miskabætur fyrir umfjöllunina og var fyrirsögnin dæmd ærumeiðandi og dauð og ómerk. Samkvæmt dómnum var ekki hægt að skilja fyrirsögnina öðruvísi en að verið væri að fullyrða að Bubbi væri byrjaður að neyta vímuefna að nýju.

Í kjölfar fréttarinnar og umfjöllunar um hana hófst ritdeila á milli Bubba og Eiríks Jónssonar, sem þá var ritstjóri Séð & Heyrt. Það andaði köldu á milli þeirra félaga eftir að dómurinn í málinu féll og vildi Bubbi ekki tala við neinn hjá Séð & Heyrt á meðan Eiríkur ritstýrði tímaritinu.

Fyrirsögnin var dæmd dauð og ómerk í Hæstarétti

Svanur Már Snorrason, starfsmaður hjá Mannlífi, vann á Séð & Heyrt þegar Bubbi og Eiríkur voru í þessum deilum. Svanur segir frá þessum tíma í pistli sem birtist á Mannlífi í dag. Þar segir hann frá því þegar hann reyndi að fá athugasemd frá Bubba fyrir frétt í mars árið 2010. Bubbi vildi að sjálfsögðu ekki ræða við Svan þar sem hann var enn reiður út í Eirík en Svanur varð fyrir vonbrigðum með viðbrögð tónlistarmannsins.

„Svona er stundum hliðarverkun reiðinnar – ég tók það upp hjá sjálfum mér að hringja í Bubba og spyrja hann um Steina – ég bað ekki Eirík um leyfi til þess. Hliðarverkun reiði tveggja manna út í hvorn annan bitnaði sem sagt á mér, þannig lagað. Ég fór ekkert að grenja eða neitt, en varð smá fúll.“

Friðarferli Eiríks

Svanur segir að á þessum tíma hafi Eiríkur verið í ákveðnu friðarferli. „Á þessum tíma, veturinn 2009-10, var hann einnig með útvarpsþátt á Kananum og þurfti stundum að hafa talsvert fyrir því að fá fólk í þáttinn, því margir óttuðust hreinlega karlinn – treystu honum ekki – héldu að hann myndi alltaf spyrja um erfið mál, snúa út úr og koma fólki í óþægilega stöðu og vera vægðarlaus, þótt fólk bæðist vægðar, vinstri hægri,“ segir Svanur.

„En Eiríkur var ekkert svona á þessum tíma – hann hafði mildast smám saman með árunum, þótt hann væri enn harður og graður í fréttastefnu sinni – hann vildi í blaðið fréttir sem voru ekki annars staðar, og var það fín stefna sem ég sjálfur hélt tryggð við eftir að ég tók við af Eiríki, enda var ég toppnemandi hans. En nú er ég kominn út í aðra sálma.“

Svanur segir að Eiríkur hafi verið búinn að ná sáttum við Jónínu Ben og einhverja fleiri. Á sama tíma kom Bubbi reglulega á skrifstofuna sem Eiríkur var að vinna á. „Hann var í ágætu sambandi við Reyni Traustason þáverandi ritstjóra DV og á þeim tíma líka ritstjóra Mannlífs, en Bubbi var einmitt þá í stóru viðtali við Mannlíf og á forsíðu þess með forláta kött á herðum sínum – flott og óvenjuleg forsíða.“

Bubbi heilsaði upp á Reyni og Jón Trausta þegar hann mætti á skrifstofuna en yrti ekki á Eirík og aðra á Séð & Heyrt. „Eiríkur varð alltaf hálf þögull þegar Bubbi var þarna – eins og hann vildi ekki neinn hávaða þegar Bubbi var á svæðinu, og brá sér gjarnan í rettupásu (hataði þær ekkert sérlega mikið eftir að hann fékk ofnæmi fyrir nikótínstautunum) á meðan Bubbi spígsporaði um svæðið,“ segir Svanur í pistlinum.

„En svo hélt þetta áfram og ég tók eftir því að Bubbi fór alltaf að færa sig nær og nær okkur – sjálfum gullkálfi Birtíngs – Séð & Heyrt – og tók að gjóa augum í átt að Eiríki og þá ekki með neinum leiðinlegum svip. Á sama tíma, eins og ég nefndi áðan, fann ég fyrir æ meiri friði í kolli Eiríks (ekki að ég hafi komið þar inn, en ég þekki nú karlinn lúmskt vel og veit hvað hann vill í blaðamennsku og stundum vissi ég nákvæmlega hvað hann var að hugsa).“

„Báðir vildu frið og lausn frá reiðinni“

Svanur segir að þann 18. mars árið 2010 ákvað hann að taka af skarið. „Þegar Bubbi gekk fram hjá okkur oftar en einu sinni og horfði í hvert sinn í átt að okkur, eða til Eiríks, og ég segi að hann hafi verið að því í von um viðbrögð – einhver viðbrögð, helst góð. En hann fékk engin viðbrögð frá Eiríki þótt ég fyndi það sterkt á honum að hann var vel meðvitaður um Bubba og nærveru hans og sáttahugsun – já, sáttahugsun. Bubbi var í sáttahug – það sá ég eins og ránfugl sér bráð sína. Og fann að Eiríkur var líka í sáttahug þennan daginn,“ segir hann í pistlinum.

Þá hallaði hann sér að Eiríku og hvíslaði að honum að Bubbi vilji sættast við hann. „Sérðu ekki að hann vill tala við þig og ljúka þessum leiðindum sem hafa hangið yfir ykkur báðum í alltof mörg ár?“ segist hann hafa sagt.

„Ég bætti þessu við með reiðina og rýtinginn og Eiríkur leit sem snöggvast á mig og sagði: „Þetta er satt hjá þér, þetta er rétt hjá þér.“ Hann stóð síðan upp og gekk í áttina að Bubba og þeir tóku strax tal saman. Ég sá hvað var að gerast – sá þessa menn horfa á hvorn annan með hundaaugum – báðir vildu frið og lausn frá reiðinni eftir langvinnt og þreytandi stríð – menn sem í raun fíluðu hvorn annan ágætlega.“

Augnablikið ljósmyndað

Þetta augnablik þurfti að ljósmynda og náði Svanur því í ljóstmyndarann Sigtrygg Ara Jóhannsson, sem er yfirleitt kallaður Diddi, og fékk hann til að mynda samtal Bubba og Eiríks. „Diddi tók nokkrar myndir en átti í erfiðleikum með vélina sína af einhverjum ástæðum. En samt fengum við eina mynd sem við töldum vera fína fyrir þetta tækifæri og sögðum við hvorn annan að myndin hefði átt að vera svona, fyrst að þessir félagar áttu í hlut,“ segir Svanur en myndina sem um ræðir má sjá í pistlinum sem birtist á Mannlífi.

„Svona er sagan á bakvið sögulegar sættir eins besta tónlistarmanns Íslands og eins besta blaðamanns Íslands.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi