fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fréttir

Dómsskjöl varpa ljósi á morðmál Guðmundar – Morðið sagt skipulagt og af yfirlögðu ráði – Krefjast 31 árs fangelsis

Heimir Hannesson
Sunnudaginn 1. ágúst 2021 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dómsskjöl frá Spáni sem DV fékk nýverið aðgang að varpa nýju ljósi á morðið sem Guðmundur Freyr Magnússon er sagður hafa framið.

Guðmundur er þar sagt hafa myrt sambýlismann móður sinnar að yfirlögðu ráði í byrjun janúar í fyrra.

Guðmundur varð fertugur í fyrra og hefur ítrekað komist í kast við lög hér á landi. Fékk hann meðal annars þriggja og hálfs árs fangelsisdóm fyrir íkveikju þar sem kona og börn voru hætt komin.

Lögreglan ytra varðist í fyrstu allra frétta af málinu, en dómsskjöl sem DV fékk nýverið afhent frá dómstólum á Spáni þykja varpa nýju ljósi á málið.

Samkvæmt þeim mun Guðmundur hafa klifrað yfir 2,5 metra háan vegg til að komast að húsi móður sinnar og hins myrta. Mun hann þar hafa sett á sig hanska í þeim tilgangi að hlífa höndum sínum og tekið svo hníf sem var á útiborði í garði móður sinnar. Segir í gögnum málsins að Guðmundur hafi tekið hnífinn í þeim tilgangi að binda endi á líf sambýlismanns móður sinnar.

Segir jafnframt að móðirin og sambýlismaðurinn hafi heyrt í Guðmundi er hann gekk um fyrir utan íbúð þeirra. Maðurinn fór út við svaladyr íbúðarinnar, á nærbuxunum einum klæða, til þess að athuga hvað gengi þar á en hann hafi lítið séð sökum myrkurs úti. „Á þeirri stundu tók ákærði gaskút sem var í garðinum og sló honum utan í glerhurð með þeim afleiðingum að glerið brotnaði og kúturinn slóst í [sambýlismann móður Guðmundar]. Mun ákærði þá hafa farið inn í húsið og stungið manninn ítrekað, eða í allt að 21 skipti, með hnífnum. Þegar hinn látni féll í jörðina hélt Guðmundur áfram að stinga hann.“

Skjáskot úr myndbandi spænskra fjölmiðla sýndu Guðmund leiddan úr húsi af lögreglu.

Þegar móðir Guðmundar reyndi að fá hann til þess að láta af árás sinni beindi hann hnífnum að henni og hótaði að myrða hana. „Ég drep þig,“ er haft eftir Guðmundi í gögnum málsins. Móðir hans flúði þá í átt að útidyrum íbúðarinnar en Guðmundi tókst að hindra flótta hennar. Brutust þá út átök milli Guðmundar og móður hans sem hún hlaut talsverða áverka af. Móður Guðmundar tókst loks að brjótast út úr íbúðinni og kalla eftir aðstoð.

Skömmu áður en fyrstu lögregluþjónar mættu á vettvang, samkvæmt gögnunum, mun Guðmundur hafa reynt að flýja af vettvangi akandi. Mun Guðmundur hafa falið hnífinn undir gólfmottu bílsins og reynt að brjótast út af lokuðu bílastæðinu með skrúfjárni, án árangurs. Í upphafi rannsóknarinnar höfðu íslenskir fjölmiðlar eftir spænskri lögreglu að bíllinn sem um ræðir hafi verið í eigu fórnarlambsins og að Guðmundur hafi fyrir árásina verið búinn að stela bíllyklunum og þannig undirbúið flóttann af vettvangi.

Mynd af hnífnum sem Guðmundur á að hafa notað til þess að bana sambýlismanni móður sinnar og síðar falið undir gólfmottu í bíl sem hann stal af fórnarlambi sínu.

Lögreglumennirnir fóru beint í það að veita sambýlismanninum aðstoð sem þá var enn á lífi. Guðmundur er sagður hafa nýtt sér þessar aðstæður og flúið hlaupandi sömu leið og hann kom, yfir vegginn sem umlykur húsið. Hann var handtekinn eftir að lögreglumenn sáu hann hlaupandi í myrkrinu skammt frá heimili móður Guðmundar og sambýlismanns hennar.

Í gögnum málsins segir að sambýlismaðurinn hafi látist skömmu eftir að lögreglumennirnir komu að honum. Hann var 65 ára að aldri og átti tvö uppkominn börn og fimm barnabörn.

Guðmundur hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan hann var handtekinn 12. janúar í fyrra.

Hann er ákærður fyrir morð að yfirlögðu ráði, innbrot og fyrir að hafa hótað móður sinni lífláti.

Saksóknarar á Spáni krefjast þess að Guðmundur verði dæmdur í 31 árs fangelsi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

„Erum við sátt við að algóritminn sjái um uppeldið“

„Erum við sátt við að algóritminn sjái um uppeldið“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Jón Magnús um þráhyggju virkra í athugasemdum – Bólusetningum kennt um allt sem úrskeiðis fer

Jón Magnús um þráhyggju virkra í athugasemdum – Bólusetningum kennt um allt sem úrskeiðis fer
Fréttir
Í gær

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið
Fréttir
Í gær

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga
Fréttir
Í gær

COLLAB HYDRO – Einstakur drykkur fyrir íslenskar aðstæður

COLLAB HYDRO – Einstakur drykkur fyrir íslenskar aðstæður
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Siggi hakkari fluttur til Danmerkur og veitti Ekstrabladet viðtal – Mikið gert úr njósnum en lítið úr kynferðisbrotunum

Siggi hakkari fluttur til Danmerkur og veitti Ekstrabladet viðtal – Mikið gert úr njósnum en lítið úr kynferðisbrotunum