Tvö lík fundust á fjallinu K2 í dag. Annað þeirra er af Ali Sadpara, en óvíst er af hverjum hitt líkið sé, en þeir sem fundu það telja það vera af John Snorra Sigurjónssyni. Það er Fjallgöngumiðillinn Explorers Web sem greinir frá þessu.
Líkt og flestir vita lést John Snorri í byrjun febrúar er hann reyndi að klífa fjallið, Ali Sadpara var með honum í för.
Fram kemur að fyrra líkið sé af Sadpara, en erfiðara er að bera kennsl á hitt líkið, þar sem það er hulið ís. Það lík er í gulum og svörtum klæðum líkt og John Snorri, en Juan Pablo Mohr var líka þannig klæddur. Fjallgöngumennirnir sem fundu það telja það vera af John Snorra
Uppfært
Explorers Web hefur nú greint frá því að þriðja líkið sé fundið, það er talið vera af Juan Pablo Mohr.