Í miðborginni var rafmagnshlaupahjóli stolið á sjöunda tímanum í gær. Vitað er hver stal því og er málið í rannsókn. Tilkynnt var um líkamsárás og þjófnað við heimahús í miðborginni rétt fyrir klukkan sjö í gær. Lögreglan ræddi við brotaþola og vitað er hver gerandinn er og er málið í rannsókn.
Á áttunda tímanum var tilkynnt um innbrot í geymslu í miðborginni.
Um klukkan 23 voru tveir handteknir í miðborginni, grunaðir um líkamsárás. Þeir voru vistaðir í fangageymslu.
Einn var handtekinn í miðborginni á öðrum tímanum í nótt eftir að tilkynnt var að viðkomandi væri að fara inn í bifreiðar sem hann átti ekki. Hann reyndist eftirlýstur vegna annars máls og var því handtekinn og vistaður í fangageymslu.
Á öðrum tímanum í nótt féll maður af rafmagnshlaupahjóli í miðborginni og slasaðist. Lögregla og sjúkraflutningamenn fóru á vettvang.
Á þriðja tímanum í nótt var ölvaður maður handtekinn við veitingastað í miðborginni en hann var til vandræða. Hann var vistaður í fangageymslu.
Einn ökumaður var handtekinn í gærkvöldi en sá er grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna og ítrekaðan akstur sviptur ökuréttindum.