fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Aðgerðirnar verða tilkynntar seint í dag

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 23. júlí 2021 11:23

- Mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ríkisstjórnin kemur saman á Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum í dag kl. 16:00 til að ræða sóttvarnaaðgerðir á grundvelli minnisblaðs sóttvarnalæknis sem heilbrigðisráðherra hefur fengið afhent.

RÚV greinir frá þessu. Var þetta fyrirkomulag ákveðið vegna þess að ráðherrar eru margir á faraldsfæti enda Alþingi í sumarleyfi.

Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra barst minnisblað Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis í gær. Ekkert hefur verið upplýst um innihald þess en Þórólfur hefur þó látið hafa eftir sér í fjölmiðlum að aðgerðirnar verði ekki eins harkalegar og þær takmarkanir sem gripið var til fyrir daga bólusetninga gegn Covid-19 hér á landi.

Fullvíst er þó talið að stórum útihátíðum verði aflýst enda mætti búast við yfir 15.000 manns á Þjóðhátíð í Eyjum að óbreyttu.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu