Líkt og flestir Íslendingar vita þá hefur Covid-19 smitum fjölgað gríðarlega undanfarna daga. Nú styttist í Verslunarmannahelgina en sú helgi er ein stærsta, ef ekki stærsta ferðahelgi ársins hér á landi. Um Verslunarmannahelgina fara fram margar útihátíðir út um allt land og hefur verið tvísýnt síðustu daga hvort þær fari allar fram. Nú hefur þeirri fyrstu verið aflýst.
Það er fjölskyldu- og bæjarhátíðiðin Flúðir um Versló sem er fyrst að fjúka en hátíðin mun ekki fara fram árið 2021. Þetta kemur fram í tilkynningu sem birtist á Facebook-síðunni Flúðir um Versló. „Flúðir um Versló mun ekki fara fram 2021. Þessi ákvörðun er okkur þungbær en niðurstaðan er þessi. Við komum (vonandi) sterkari og stærri til baka 2022. Engin skipulögð dagskrá verður á okkar vegum á Flúðum þetta árið,“ segir í tilkynningunni. „Verum örugg og hugum mjög mjög vel að persónulegum smitvörnum. Látum ekki pestina hafa meira af okkur!“
Margir óttast eflaust að fleiri útihátíðir þurfi að taka pokann sinn í ár. Djammþyrstur ungdómurinn og Eyjamenn naga á sér neglurnar þessa dagana og binda vonir við það að Þjóðhátíð verði ekki aflýst enn einu sinni. Miðað við fréttir dagsins verður það þó sífellt líklegra að Þjóðhátíð fari ekki fram. Í gær byrjaði til að mynda veðmálasíða að bjóða fólki upp á að veðja hvort Þjóðhátíð í Eyjum fari fram í ár en stuðullinn á því að hún fari ekki fram hefur farið lækkandi síðan opnað var fyrir veðmálið.