fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Niðurstaða komin í Ásmundarsalsmálið – „Ég er ekki aðili að málinu,“ segir Bjarni

Máni Snær Þorláksson
Fimmtudaginn 24. júní 2021 15:02

Ásmundarsalur.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ásmundarsalsmálið svokallaða vakti mikla athygli á Þorláksmessu í fyrra en þá varð hópur fólks uppvís að því að brjóta sóttvarnarlög. Málið vakti sérstaka athygli þar sem Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, var staddur í salnum þetta kvöld ásamt eiginkonu sinni.

RÚV greindi frá því að niðurstaðan væri komin í málið en í skriflegu svari frá Maríu Káradóttur, aðstoðarsaksóknara á ákærusviði lögreglunnar, segir að lögreglan geti ekki upplýst um afgreiðslu á einstökum málum. Samkvæmt heimildum Vísis er niðurstaðan sú að hlutaðeigandi aðilum hafi verið boðið að gangast undir lögreglustjórasátt, það er að greiða sekt innan ákveðins tímaramma.

Í samtali við Vísi segist Bjarni ekki hafa vitað af því að niðurstaða væri komin í málið. Þá segist hann ekki hafa verið til rannsóknar eftir hans vitund. „Ég er ekki aðili að málinu,“ sagði Bjarni í samtali við blaðamann Vísis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“