Samherji birti afsökunarbeiðni bæði í Fréttablaðinu og í Morgunblaðinu í morgun sem Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, undirritar. Hrafn Jónsson, kvikmyndagerðarmaður og einn vinsælusti pistlahöfundur Íslands, hefur birt færslur um afsökunarbeiðnina en segja má að hann hakki hana í sig í færslunum.
Færslurnar sem um ræðir birti Hrafn annars vegar á Facebook-síðu sinni og hins vegar á samfélagsmiðlinum Twitter. Færslan sem hann birti á Facebook hefur á skömmum tíma vakið mikla athygli en til að mynda hefur rithöfundurinn Hallgrímur Helgason deilt henni á sinni síðu. Þá tekur fjölmiðlakonan Lóa Pind Aldísardóttir undir með færslu Hrafns í athugasemdunum við hana.
Sjá einnig: Þorsteinn biðst afsökunar en skellir skuldinni um leið á Jóhannes – „Við hörmum þetta“
Hrafn segir í upphafi færslunnar að það sé þess virði að staldra aðeins við og rýna í það sem raunverulega stendur í afsökunarbeiðninni sem birtist í blöðunum í morgun.
„Nú þegar Þorsteinn Már hefur sjálfur skrifað undir þessa bljúgu afsökunarbeiðni fyrir hönd Samherja held ég að það sé þess virði að staldra aðeins við og rýna í hvað stendur í alvörunni í þessu ágæta bréfi,“ segir Hrafn og tekur svo fyrir fyrstu línur afsökunarbeiðninnar sem hljómar svona:
„Ámælisverðir viðskiptahættir fengu að viðgangast í starfsemi útgerðar Samherja í Namibíu. Veikleikar voru í stjórnskipulagi og lausatök sem ekki áttu að líðast. Við brugðumst ekki við eins og okkur bar.“
„Það sem stendur raunverulega þarna er að einhverjir skúrkar hafi í nafni Samherja stundað „ámælisverða viðskiptahætti“. Auðvitað án allrar vitundar og aðkomu yfirmanna fyrirtækisins. Veikleikinn var fyrst og fremst að treysta, treysta og elska,“ segir Hrafn um þessa fyrstu línur afsökunarbeiðninnar.
Við hjá Samherja viljum biðjast afsökunar á því að einhver úti í heimi gerði eitthvað sem við höfðum ekki hugmynd um og að eitthvað fólk hafi farið að væla yfir því. Þetta er eins og eitthvað sósíópata-listaverk. pic.twitter.com/mM2koHqBqW
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) June 22, 2021
Næstu línur sem Hrafn tekur fyrir hljóða svona: „Þetta hefur valdið uppnámi hjá starfsfólki okkar, fjölskyldum, vinum, samstarfsaðilum, viðskiptavinum og víða í samfélaginu. Við hörmum þetta og biðjumst einlæglega afsökunar.“
Hrafn segir að þarna sé á ferðinni „hin sígilda ofbeldismannaafsökunarbeiðni“. „Ahh, þetta er hin sígilda ofbeldismannaaföskunarbeiðni; við biðjumst ekki afsökunar á framferði okkar, siðleysi, lögbrotum og ofsóknum – heldur biðjumst við afsökunar á upplifun þolandans. Sorrí að þér leið illa, sorrí að þú sökkar svona mikið,“ segir hann.
Þá tekur Hrafn næst fyrir eftirfarandi línur úr afsökunarbeiðninni:
„Það geri ég persónulega sem forstjóri og einnig fyrir hönd félagsins sem ætíð hefur haft vönduð vinnubrögð að leiðarljósi í allri sinni starfsemi. Við viljum ekki láta við það sitja að biðjast afsökunar heldur draga lærdóm af þessum mistökum og tryggja að ekkert slíkt gerist aftur. Í því skyni höfum við gripið til viðamikilla ráðstafana.“
Hrafn segir við þessu: „Mistök, ekki brot, ekki glæpur. Bara smá slys. Gerist ekki aftur. Höfum gripið til viðamikilla ráðstafana. Ætlum samt ekki að segja ykkur hverjar þær eru, en þær eru alveg geggjaðar og alveg heví viðamiklar. Engin fleiri þriðjaheims arðrán, lofum.“
Að lokum tekur Hrafn svo fyrir síðustu tvær málsgreinar afsökunarbeiðninnar. „Frá upphafi hefur það verið meginmarkmið okkar að framleiða hágæða sjávarafurðir í sátt við umhverfið með ríka áherslu á sjálfbærni og góða umgengni við auðlindir sjávar. Við viljum halda því áfram og horfa fram á veginn. Mistök okkar í Namibíu eru ekki síst okkur sjálfum mikil vonbrigði. Við munum ekki láta slíkt henda aftur,“ s
Meginmarkmið þessa risavaxna stórfyrirtækis sem er núna rannsakað í mörgum ríkjum fyrir glæpsamlega viðskiptahætti er alls ekki að græða eins ógeðslega mikinn pening og við getum, heldur koma sem best fram við móður jörð. Raunar mætti segja að við værum náttúruverndarsamtök. Sjálfseignastofnun sem þjónar engum nema móður jörð. Ekki hringja í mig til að fá frekar skýringar á þessu.