Allar björgunarsveitir á Suðurlandi og í Árnessýslu voru kallaður út klukkan 13:20 í dag vegna svifflugmanns sem hafði lent í vandræðum á Búrfelli í Þjórsárdal og var slasaður. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg.
Töluverður viðbúnaður er vegna slyssins, en sjúkraflutningamenn frá Suðurlandi voru kallaðir út ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar.