Tveir greindust með smit kórónuveirunnar hér innanlands í gær, báðir voru í sóttkví. Alls eru í dag 63 í einangrun vegna veirunnar og 330 í sóttkví.
Tvennt greindist á landamærum í gær, annað með virkt smit í fyrri landamæraskimun og hinn úr seinni skimun.
Bólusetningar ganga vel og eru í dag 65.011 fullbólusettir.