Þeir sem ætla sér inn á gossvæðið við Fagradalsfjall fyrir kl. 12 á morgun og á sunnudag gera það á eigin ábyrgð. Svæðið er hættulegt og þá ekki síst vegna lélegra loftgæða. Lögregla getur án fyrirvara lokað fyrir alla umferð inn að gosstöðvunum. Gert er ráð fyrir því að bannsvæði við eldstöðvarnar verði markað á korti sem verður birt síðar í dag. Þeir sem klæða sig ekki vel hafa ekkert inn á svæðið að gera. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.
Þar er ennfremur ítrekað að svæðið sé ekki fyrir lítil börn, þau séu viðkvæm og nær jörðinni en þeir sem eldri eru og því útsettari fyrir skaðlegum lofttegundum.
Veðurlýsing fyrir daginn í dag:
Fremur hæg norðlæg átt í fyrstu, en síðan norðvestan átt um 8-13 m/s. Skammvinn vestanátt með snjókomu milli kl. 15 og 18. Hæg breytileg átt í kvöld og líkur á stöku éljum, en þurrt í nótt. Frost 0 til 3 stig.
Gasmengunin ætti fyrst að fara til suðurs og síðar suðvesturs og ekki líkur á mengun í byggð. Í kvöld er aftur á móti hæg breytileg átt og líkur á að gas safnist upp við gosstöðvarnar.
Laugardagur:
Gossvæðið verður vaktað af lögreglu og björgunarsveitum frá kl. 12 á morgun til kl. 24. Lokað verður inn á svæðið kl. 21. Rýming hefst kl. 23 og verður lokið fyrir miðnætti.
Veðurlýsing fyrir laugardag:
Hæg suðlæg eða suðvestlæg átt og þurrt. Hægt vaxandi vindur þegar líður á daginn, S og síðar SV 8-13 m/s síðdegis með éljum. Hiti kringum frostmark. Gasmengun berst einkum til norðurs og norðausturs og gæti borist að Vogum og til Höfuðborgarsvæðisins.
Sunnudagur:
Gossvæðið verður vaktað af lögreglu og björgunarsveitum frá kl. 12 á morgun til kl. 24. Lokað verður inn á svæðið kl. 21. Rýming hefst kl. 23 og verður lokið fyrir miðnætti.
Búast má við gasmengun vegna eldgoss á Reykjanesi og er fólk hvatt til að fylgjast með loftgæðamælingum á loftgaedi.is og leiðbeiningum frá Almannavörnum.