Kastljósþáttur kvöldsins vakti mikla athygli. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, var gestur Jóhönnu Vigdísar Hjaltadóttur, en þau ræddu um baráttuna við COVID-19.
Eftirminnilegasta augnablik þáttarins var án efa þegar Kári var spurður út í utanlandsferðir. Þá nýtti hann tækifærið til að láta Brynjar Níelsson, þingmann Sjálfstæðisflokksins, heyra það, en utanlandsferð Brynjars hefur vakið talsverða athygli í fjölmiðlum. Kári uppnefndi Brynjar og líkti honum við Donald Trump, auk þess sem hann hélt því fram að framkoma hans gagnvart íslensku samfélagi væri ruddaleg.
„Ég heyrði að Brynjar Trump Níelsson hefði látið heyra frá sér á Spáni. Þar hafi hann farið og átt ekkert erindi til útlanda og var þar með að reka fingur framan í sóttvarnaryfirvöld. Sem mér finnst heldur vafasamt af kjörnum fulltrúa þjóðarinnar. Mér finnst það ruddaleg aðferð við að hundsa hagsmuni samfélagsins. Hundsa að tilraunir sóttvarnaryfirvalda til að hlúa að heilsu fólks í landinu. Mér finnst það mjög ljótt.“
Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi ráðherra, var ekki parsátt með framgöngu Kára gagnvart flokksbróður sínum. Í færslu sem hún birti á Twitter í kvöld breytti sneri hún líkingunni við og líkti Kára við fyrrverandi Bandaríkjaforseta þar sem þeir væru báðir „kjaftforir auðkýfingar á áttræðisaldri“.
Sprækur og kjaftfor auðkýfingur á áttræðisaldri vill reisa múr á landamærunum og kallar annan mann Trump.
— Sigríður Á. Andersen (@siggaandersen) April 8, 2021
Sigríður og Brynjar hafa í baráttunni gegn kórónuveirunni líklega verið helstu andlit slakari sóttvarnaraðgerða. Kári hefur aftur á móti verið eitt helsta andlit frekari aðgerða.
Sigríður var þó ekki eina manneskjan sem tjáði sig um kastljósþáttinn á samfélagsmiðlinum Twitter. Siffi G, einn helsti tístari landsins, sagðist til að mynda vera tilbúinn í deilur á milli Brynjars og Kára.
Ég er mjög gíraður í opinbera deilu á milli Kára Stef og Brynjar Níels.
— Siffi (@SiffiG) April 8, 2021