Vísir.is skýrir frá þessu. Hefur Vísir.is eftir Margeiri Sveinssyni, yfirlögregluþjóni, að rannsóknin beinist meðal annars að því að upplýsa hvernig maðurinn hlaut þá áverka sem urðu honum að bana. Vísir.is segist hafa heimildir fyrir að hann hafi verið með talsverða höfuðáverka og að skoðað sé hvort ráðist hafi verið á hann eða hvort bíl hafi verið ekið á hann og hann skilinn eftir í sárum sínum.
Sjá einnig: Íslendingur látinn eftir hrottalega árás fyrir utan heimili sitt í Kópavogi
Þrír voru handteknir vegna málsins en gæsluvarðhalds verður krafist yfir einum. Vísir.is segir að heimildir hermi að um rúmenskan ríkisborgara sé að ræða.