Sakborningurinn sem var í dag úrskurðaður í fimm daga gæsluvarðhald vegna andláts manns í kjölfar meintrar líkamsárásar vill meina að um slys sé að ræða. RÚV greinir frá þessu, en þar er haft eftir verjanda sakborningsins að hann sé niðurbrotin vegna málsins. Málið er rannsakað sem manndráp.
Líkt og hefur komið fram var maðurinn sem lést um þrítugt og sakborningurinn á þrítugsaldri. Þrír voru handteknir vegna málsins enn einungis einn þeirra úrskurðaður í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness í dag.
Talið er að maðurinn hafi orðið fyrir bíl, en það er nú rannsakað.
Verjandi sakborningsins sagði við RÚV að þeir ætli að taka sér frest til morguns til að ákveða hvort umrætt gæsluvarðhald verði kært til Landsréttar.