Alls greindust 10 einstaklingar með kórónuveiruna innanlands í gær. Af þeim voru allir í sóttkví nema einn. Alls eru þá 812 í sóttkví og 134 í einangrun. Fjórir eru á sjúkrahúsi.
Gert er ráð fyrir að stór hópur fólks losni úr sóttkví í dag, meðal annars þeir sem tengdust hópsmitinu á leikskólanum Jöfra og Álftamýraskóla.
Mbl greindi frá því í morgun að 19 starfsmenn leikskólans Jörfa eru smitaðir, 22 börn og 15 tengdir aðilar; systkini eða foreldrar barna í leikskólanum.
Nýgengi innanlands smita heldur áfram að hækka og er nú 31,1 en er 5,5 á landamærunum.