Þórarinn Ævarsson, stofnandi og framkvæmdastjóri pitsastaðarins Spaðans vakti heldur betur athygli í þættinum Dagsmál á Morgunblaðinu í gær, en þar ræddi hann um pitsustríð sem mun ríkja í landinu og sagði það markmið sitt og Spaðans að keyra samkeppnisaðilann Dominos í þrot á næstu árum.
Þórarinn var um árabil framkvæmdastjóri Dominos á Íslandi og meðal annars maðurinn sem kom Megavikunni af stað hér á landi. Hann telur þó að Dominos hafi undanfarin ár farið út af sporinu hvað varði vörur og verðlagningu og því hafi hann falast eftir því að kaupa fyrirtækið þegar það var til sölu hér á landi í fyrra.
„Þar ætlaði ég að breyta til og laga. Í staðinn fyrir að taka 5 ár í að koma Dominos á hausinn, sem ég ætla að gera, þá hleyp ég bara inn og gleypi þá og breyti markaðnum varanlega.“
Þessi ummæli hafa vakið mikla athygli og að sjálfsögðu þurftu Íslendingar að tjá sig um þetta heita umræðuefni.
https://www.facebook.com/Dominos.is/posts/10158388436589716
Er að fara að opna nýja verslun með garn og prjónadót.
Markmiðið er að bjóða upp á gæða…nei bíddu, markmiðið er að keyra Ömmu mús – handavinnuhús í fokking þrot😤😤
— Tómas Ingi (@tomasingiad) April 22, 2021
Í staðinn fyrir að taka 5 ár í að koma H&M á hausinn, sem ég ætla að gera, þá hleyp ég bara inn og gleypi þá og breyti markaðnum varanlega.
— Guðmundur Jörundsson (@gudmundur_jor) April 22, 2021
Sjitt. @denverslun nú genguð þið of langt.
Í staðinn fyrir að taka 5 ár í að koma Denverslun á hausinn, sem við ætlum að gera, þá hlaupum við bara inn og gleypum þá og breytum markaðnum varanlega. pic.twitter.com/efRXJsG4Qv
— Macland (@macland) April 22, 2021
Spaðinn – scmaðinn, Dominos – scmominos. Á Íslandi hefur ekki verið góður pizzastaður frá því að Cairo-inn í Hafnarstræti lokaði.
— Stefán Pálsson (@Stebbip) April 23, 2021
Eina sem ég hef um þetta Spaða/Domino's dæmi að segja er að í Prag er staður sem heitir "Pizza Go Home" sem heimsendir pizzur, sígarettur og sterkt áfengi, þannig að allt á Íslandi er drasl í samanburði.
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) April 22, 2021
Frítt tip fyrir Spaðann
Þú gerir ekki gjaldþrota eina pizzustaðinn á landinu sem sendir heim og gerir það vel
Það er flestum sama um að það sé til betri pizza á Eyrarbakka ef Dominos er mætt til þín eftir 25 mínútur og þú hafðir nákvæmlega 2 mínútur til að "elda"
— Hörður Ágústsson (@horduragustsson) April 22, 2021
Rosalega var gott að koma frá sér skoðun á Spaðinn vs Dominos málinu.
Þvílíkur léttir
— Hörður Ágústsson (@horduragustsson) April 22, 2021
Einu sinni búin að fá pizzu frá Spaðanum. Pantaði eitthvað sem hefði átt að vera vel djúsí með alls konar áleggjum, en nei, hún var mjög bragðlítil og ansi þurr. Ekkert contest við Dominos, sem þó er ekki uppáhalds heldur bara þæginda.
— Ásdís (@asdiso) April 22, 2021
ég henti í pass á spaðann eftir að eigandinn talaði um að pizzurnar væru drekkhlaðnar áleggi
— Tómas (@tommisteindors) April 22, 2021
Frábær frábær fyrirsögn pic.twitter.com/32AgGKFqfc
— Margrét Erla Maack (@mokkilitli) April 22, 2021
Fyrst voru það Ali Baba og Mandí. Nú er það Dominos og Spaðinn. It's like shawarmageddon all over again!
— 𝕰𝖌𝖎𝖑𝖑 𝕳𝖆𝖗𝖉𝖆𝖗 (@egillhardar) April 23, 2021
Umræðuefni: Er Ananas löglegur á pizzu?
Dominos er með og Spaðinn á móti
Oddadómari: @PresidentISL https://t.co/fIjILPNOTp— Máni (@gunnarmani) April 23, 2021
Hahaaha ef Spaðinn vill vinna þetta stríð þá verðu hann að sponsa nemendafélagið í Borgó hahah samningurinn við Dominos var að renna út, whaaaat hahahaha
— Jón Bjarni (@jonbjarni14) April 23, 2021
Síðast þegar ég vissi þá gerði Spaðinn ekki þessa auglýsingu. pic.twitter.com/47fI2KoraJ
— Jón Bjarni (@jonbjarni14) April 22, 2021
Dominos og spaðinn með beef hvað með pizzuna hvað eigum við að beefa við? Hróa hött?
— Gunnar Stefan Bjarnason (@GunnarStefanBj1) April 22, 2021
Mér finnst svo ótrúlega óflatterandi þegar fyrirtæki og fólk rífast í fjölmiðlum. Dæmi: Dominos vs Spaðinn, Róbert Wessman vs Halldór og HAnnes Holmstein vs allir.
Leave me out of it
— María Einarsdóttir (@majae) April 22, 2021
Að opna pizzastað og ætla að reyna koma Domino's á hausinn hlýtur að vera heimskasta markmið sem til er.
— Tóti (@totismari) April 22, 2021
Ótrúlega flottur og auðmjúkur maður, hann Þórarinn í Spaðanum.
— Hildur Karen (@HildurKarenSv) April 22, 2021
Vil taka það skýrt fram að f&$%ing #Dominos er ekki minn styrktaraðili!
— Ómar Stefánsson (@OmarStef) April 16, 2021
Ekki túlka þetta eins og ég sé að taka afstöðu í umdeildu deilumáli, en mig hefur aldrei langað meira í Dominos-pizzu en í dag
— Snærós Sindradóttir (@Sindradottir) April 22, 2021