RÚV hefur verið með vefmyndavél við eldgosið í Fagradalsfjalli frá því að byrjaði að gjósa. Ýmsir aðilar hafa nýtt sér myndavélina til að koma sér í sjónvarpið en streymið er bæði aðgengilegt á RÚV.is og á sjónvarpsstöðinni RÚV 2.
Rétt eftir klukkan eitt í dag birtust tveir aðilar fyrir framan myndavélina með skilti sem á stendur „No deportations“ eða „engar brottvísanir“. Aðeins örfáum sekúndum eftir að skiltið var sett fyrir framan myndavélina var streymið tekið niður og farið að sýna veðurfréttir frekar. Þegar streymið hófst á nýju var skiltið farið.
Það hefur vakið mikla lukku á netheimum þegar fólk birtist fyrir framan myndavélina en dæmi er um að fólk stilli sér upp með eldgosið í bakgrunni til að fá góða mynd fyrir Instagram og að send séu skilaboð með táknmáli til þeirra sem heima sitja að fylgjast með.