Suðurstrandarvegi verður lokað á morgun, laugardaginn 3. apríl. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum.
Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir svæðið en veðurspáin gerir ráð fyrir suðvestan og síðar vestan 15-23 metrum á sekúndu með rigningu eða súld og lélegu skyggni á gosstöðvunum.
Umferð sem nauðsynlega þarf að fara um Suðurstrandarveg mun geta farið framhjá lokunum.
Gert er ráð fyrir því að opnað verði fyrir umferð að gosstöðvum aftur á sunnudaginn klukkan 6:00.