Ný sprunga opnaðist við eldgosið í Geldingadölum fyrr í dag. Elísabet Pálmadóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofunni, segir í samtali við Fréttablaðið að undanfarið sé órói búinn að mælast á svæðinu sem Veðurstofan hefur verið að fylgjast með.
„Þetta eru mjög lítil og væg merki þannig við settum það undir smásjá og erum búin að vera að fylgjast með því og sáum þá sömu lækkun og hefur gerst fyrir opnanir. Þetta er ekki mikil breyting innan gossvæðisins en þarna sáum við merki og gátum séð þetta aðeins fyrir,“ segir Elísabet í samtali við Fréttablaðið um nýju sprunguna.
Elísabet segir að gosopið sé eiginlega í miðjunni í röð hinna gíganna en hún segir það vera lítið. „Það er spurning hvort þetta verður að gíg. Það frussast bara úr þessu núna,“ segir hún.
Vegna veðurs er gossvæðið lokað í dag svo almenningur getur ekki skoðað nýjasta gosopið eins og er. Á meðan gossvæðið er lokað getur almenningur þó horft á nýjasta opið í gegnum vefmyndavél RÚV en Elísabet segir að sjá megi opið lengst til vinstri í streyminu.