Gríðarlega sorglegt atvik hefði getað átt sér stað á Akureyri í dag, þegar að tíu ára barn missti stjórn á rafskútu, en hársbreidd munaði á að það lenti fyrir bíl. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Akureyri.
Rafskútan var á vegum rafskútuleigunnar Hopp, en samkvæmt reglum fyrirtækisins þurfa leigutakar að var eldri 18 ára eða eldri. Barnið var þó líkt og áður segir einungis tíu ára.
Barnið hafði ekki fulla stjórn á hjólinu og var togað út á götu þar kom bíll á 50 kílómetra hraða, en samkvæmt tilkynningunni munaði ansi litlu á því að ekið yrði á barnið.
Fólk sem varð vitni að þessu varð fyrir miklu áfalli, en fram kemur að ekki þurfi að fjölyrða um hvað hefði getað gerst ef illa hefði farið.
Lögregla vill brýna fyrir foreldrum að ræða mál sem þessi við börnin sín og brýna fyrir þeim að þau megi ekki leigja svona hjól.
„Nú í dag barst okkur tilkynning um að barn hefði verið á rafskútu (rafmagnshlaupahjóli) hjólaleigunnar Hopp sem var að opna leigu hér á Akureyri. Alla jafna telst það ekki til tíðinda að barn sé að hjóla á rafskútu. Eins er opnun þessarar leigu hér á Akureyri bara hið besta mál, fari leigutakar að reglum fyrirtækisins. Skv. reglum Hopp þurfa leigutakar að vera 18 ára og eldri til að mega leigja hjól. Viðkomandi barn var um 10 ára gamalt. Það sem gerðist var að barnið gat ekki valdið hjólinu að fullu vegna stærðar og þyngdar og við gangbraut eina hér í bæ, gerðist það að hjólið fór af stað og togaði barnið út á götuna og hársbreidd munaði að bifreið yrði ekið á barnið og þeirri bifreið var ekið á umferðarhraða, 50 km mv. klukkustund. Vegfarendur sem þetta sáu var mikið niðri fyrir vegna þessa atviks og í áfalli. Það þarf ekki að fjölyrða um hvað hefði getað gerst ef illa hefði farið. Því viljum við beina þeim vinsamlegu tilmælum til foreldra að ræða þetta við börn sín, brýna fyrir þeim að þau megi ekki leigja þessi hjól og eins að gæta ávallt varúðar við hjólreiðar, nota alltaf reiðhjólahjálma. Með vinsemd og virðingu og von um að allt gangi sem best“