fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Segir lögregluna á Akranesi brjóta lög um persónuupplýsingar

Bjarki Sigurðsson
Þriðjudaginn 13. apríl 2021 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karl Hrannar Sigurðsson er íbúi á Akranesi og starfar sem ráðgjafi á sviði persónuverndar. Hann segir lögregluna á Akranesi brjóta lög um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi.

„Á Akranesi fer fram eftirlit með hraðakstri ökumanna. Slíkt eftirlit er auðvitað gott og blessað, enda mikilvægt að ökumenn keyri innan hraðamarka til að tryggja öryggi sitt og annarra vegfarenda. Eftirlitið á Akranesi fer þó fram með fremur athyglisverðum hætti.“

Hann segir hvítan Volkswagen Caddy með myndavél sé lagt á ýmsum stöðum við bæinn og tekur lögreglan þannig myndir af ökumönnum sem aka of hratt. Bifreiðin er ekki merkt lögreglubifreið. Samkvæmt lögum nr. 75/2019 á vinnsla á persónuupplýsingum að fara fram með sanngjörnum hætti. Í því felst að gagnsæi sé til staðar gagnvart einstaklingum.

„Á kröfunni um gagnsæi eru þó að sjálfsögðu ákveðnar undantekningar. Henni er ekki ætlað að koma í veg fyrir að löggæsluyfirvöld sinni starfsemi sem miðar að því að koma í veg fyrir, rannsaka, koma upp um, saksækja fyrir refsiverð brot eða fullnægja refsiviðurlögum. Slík starfsemi verður þó að teljast nauðsynleg og hófleg ráðstöfun. Í einföldu máli má segja að vöktun með leynd sé heimil í ákveðnum tilvikum þar sem vægari úrræði duga ekki til,“ segir Karl og bendir á að stundum er óheppilegt að upplýsa meinta brotamenn um eftirlit þar sem þeir myndu grípa til annarra ráðstafana. Hann tekur fíkniefnainnflutning sem dæmi:

„Gefum okkur til dæmis að rökstuddur grunur sé uppi um að tilteknir einstaklingar standi að stórfelldum fíkniefnainnflutningi. Lögregla grípur til þess ráðs að hlera símtöl þeirra. Hér gefur augaleið að óheppilegt væri að upplýsa hina meintu fíkniefnasala um eftirlitið, enda myndu þeir eflaust grípa á það ráð að eiga tiltekin samskipti með öðrum hætti en í gegnum síma. Þar með gætu þeir haldið áfram að komast upp með hið meinta ólögmæta athæfi. Í þessu tilfelli má segja að vöktun með leynd sé nauðsynleg til að koma í veg fyrir refsivert brot og ekki þarf því að upplýsa um hana,“ segir Karl og vill meina að sama sé ekki hægt að segja um eftirlit með hraðakstri ökumanna.

Hann segir að yfirleitt sé ekki um einbeittan brotavilja að ræða hjá ökumönnum og ólíklegt sé að þeir finni sér aðra leið til að „svala þörf sinni fyrir hraðakstur“.

„Með vitneskju um staðsetningu lögreglunnar grípa flestir ökumenn á það sjálfsagða ráð að virða hraðamörk. Eftirlit með leynd er því á engan hátt nauðsynlegt til að koma í veg fyrir brot þeirra. Undirritaður vill taka fram að hann er á engan hátt talsmaður hraðaksturs og öll erum við eflaust sammála um að hann er hættulegur. Með sýnileika lögreglu er komið í veg fyrir hraðakstur og hættunni sem af honum hlýst er afstýrt. Þegar lögregla liggur í leyni er hinu hættulega ástandi aftur á móti viðhaldið og aðferðin því ekki til þess fallin að tryggja öryggi ökumanna og annarra vegfarenda,“ segir Karl að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Í gær

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Yfirmaður á hjúkrunarheimili snýr til baka úr leyfi í skugga ásakana um áreitni við ungt starfsfólk

Yfirmaður á hjúkrunarheimili snýr til baka úr leyfi í skugga ásakana um áreitni við ungt starfsfólk
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Grunur um manndráp á Akureyri

Grunur um manndráp á Akureyri