Í Viðskiptamogganum á miðvikudag mátti finna umfjöllun um nýja bók um styttingu vinnuvikunnar eftir Alex Soojung-Kim Pang.
Bókin nefnist Styttri: Komdu meira í verk á skemmri tíma. Lögfræðingurinn Sara Lind Guðbergsdóttir þýddi verkið, en Sara Lind er gift Stefáni Einari Stefánssyni.
Það hlýtur að hafa legið beinast við að Viðskiptamogginn fjallaði um verkið en Stefán Einar er einmitt fréttastjóri þar á bæ og því hefur eflaust reynst auðvelt að komast í samband við Pang. Þetta hlýtur að eiga vel við tilefnið, að stytta sér leið í samræmi við styttri vinnuviku. Edda, útgáfufélag í eigu Árvakurs sem á Morgunblaðið, gefur bókina út og eru ekki nema örfá skref á milli hæða þar