fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Lokað fyrir umferð að gosstöðvunum í kvöld

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 28. mars 2021 14:31

Frá gossvæðinu. Mynd: Sigtryggur Ari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Af öryggisástæðum hefur lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákveðið að loka fyrir umferð um Suðurstrandarveg að gosstöðvum í Geldingadölum kl. 21 í kvöld.  Þá verða Geldingadalir rýmdir laust fyrir miðnætti.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá embættinu. Ástæður lokunarinnar virðast var þreyta hjá börgunarliði og smithætta af Covid-19. Fréttir hafa borist af gasmengun á svæðinu í dag en þær eru ekki tilgreindar í tilkynningunni. Í henni segir:

„Þörf er á að hvíla björgunarlið sem nú hefur staðið vaktina í rúma viku en ekki er sjálfgefið að hægt verði að tryggja öryggi fólks seint um kvöld og að næturlagi við gosstöðvarnar í því margmenni sem þar hefur verið síðustu daga.   

Þá getur komið til lokana á Suðurstrandarvegi fyrirvaralaust ef í óefni stefnir með bílastæði á svæðinu eða ef upp koma aðstæður er krefjast tafarlausra aðgerða af hálfu viðbragðsaðila.

Vegna smithættu hefur sóttvarnalæknir eindregið hvatt fólk til þess að vera heima og láta vera að heimsækja eldstöðvarnar.

Þar sem eldgosið virðist ekki vera á undanhaldi ætti að gefast nægur tími til að berja það augum en ágætlega lítur út með veður á næstu dögum.

Hingað til hefur gengið vel og engin slasað sig illa.  Við viljum vera á þeim stað áfram en til að tryggja það er nauðsyn á að hefta eilítið aðgang fólks eins og hér hefur verið lýst.

Ákvörðun um opnun Suðurstrandarvegar verður síðan tekin í fyrramálið kl. 7.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“
Fréttir
Í gær

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Í gær

Dómur kveðinn upp yfir manni sem réðst á starfsmann Landspítalans

Dómur kveðinn upp yfir manni sem réðst á starfsmann Landspítalans
Fréttir
Í gær

Segir það verða sannkallaða martröð fyrir Rússa ef þeir ráðast inn í stórborgina Kharkiv

Segir það verða sannkallaða martröð fyrir Rússa ef þeir ráðast inn í stórborgina Kharkiv
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“