fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Prentmet Oddi kaupir Ásprent Stíl

Bjarki Sigurðsson
Fimmtudaginn 25. febrúar 2021 16:22

Mynd: Aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Prentmet Oddi hefur keypt rekstur Ásprents Stíls og hyggst endurvekja rekstur þess í samstarfi við KEA. Prentmet Oddi hyggst efla límmiðaprentun sem og stafræna prentun Ásprents Stíls og verður tækjakostur starfseminnar efldur í því samhengi. Prentmet Oddi þekkir vel til rekstrar prentsmiðja utan höfuðborgarsvæðisins en félagið hefur um langt skeið rekið starfsstöðvar bæði á Akranesi og Selfossi. Gunnhildur Helgadóttir  hefur tekið til starfa sem útibústjóri. Einnig munu fimm aðrir starfsmenn Ásprent Stíls starfa hjá útibúinu á Akureyri.

Ásprent Stíll er rótgróin prentsmiðja stofnuð árið 1975 af Árni Sverrissyni en rekstur prentsmiðjunnar má þó rekja allt til ársins 1901. Prentsmiðjan hefur því þjónustað íbúa og atvinnulíf á Norðurlandi svo áratugum skiptir og mun gera það áfram.

Eigendur Prentmet Odda, hjónin Guðmundur Ragnar Guðmundsson og Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir, eru full tilhlökkunar að taka við rekstrinum. „Við erum spennt að takast á við þetta verkefni en við höfum sterkar taugar til Akureyrar enda kynntumst við hjónin þar í skólaferðalagi fyrir rétt rúmum 30 árum,“ Þau segja það forsendu þess að að ráðast í þetta verkefni og til að tryggja umsvif fyrirtækisins á Akureyri að eiga gott samstarf við KEA um endurreisn rekstrarins, m.a. með viðskiptasamningum um prentun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Hartman í Val
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Flassari fyrir dóm – Sakaður um að hafa sýnt af sér ósiðlegt og lostugt athæfi

Flassari fyrir dóm – Sakaður um að hafa sýnt af sér ósiðlegt og lostugt athæfi
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Ofbeldismenn herja á starfsfólk Héraðssaksóknara

Ofbeldismenn herja á starfsfólk Héraðssaksóknara
Fréttir
Í gær

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“
Fréttir
Í gær

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“