Nokkrir einstaklingar hafa fengið áminningu og einn farið í skráningarbann á völlum Golfklúbbs Reykjavíkur vegna máls sem litið er alvarlegum augum af framkvæmdastjóra Golfsambands Íslands. Einstaklingurinn sem kominn er í skráningarbann varð uppvís að því að tengja forrit við Golfbox, skráningarkerfi golfvalla, og nota það til að skrá rástíma að vild og komast þannig fram fyrir röðina.
RÚV fjallaði um málið en samkvæmt heimildum þeirra eru þrír þjóðþekktir aðilar á meðal þeirra sem hafa gerst sekir um svindlið. Heimildir RÚV herma að þjóðþekktu aðilarnir séu forstjóri stórfyrirtækis, þekktur fjölmiðlamaður og fyrrverandi þingmaður.
Brynjar Eldon, framkvæmdastjóri Golfsambands Íslands, segir í samtali við RÚV um málið að það sé, eins og áður segir, litið alvarlegum augum. „Það virðist vera að einhver hafi verið að beita svokölluðum skriftum við að komast að í rástíma og þá framfyrir aðra í röðinni sem er óásættanlegt. Við vitum af tveimur málum sem hafa komið upp í golfhreyfingunni síðan við tókum upp þetta kerfi,“ segir hann.
„Þetta er bara vont mál – þarna er bara verið að svindla. Það er hægt að gera ranga hluti á flestum tölvukerfum ef vilji er fyrir því og þarna eru einstaklingar sem gera það og ég vona svo sannarlega að klúbbarnir taki hart á þessu. Þetta er bara leiðinlegt mál.“
Þá segir Brynjar að það komi til greina að vísa þjóðþekktu aðilunum og öðru fólki í sömu sporum úr klúbbum fyrir svindl sem þetta. „Enda mjög alvarlegt að gera þetta og þarna er augljóslega verið að brjóta reglur.“
Uppfært kl. 16:14:
Vísir fjallaði einnig um málið en þar kemur fram að það sé golfklúbburinn Stullarnir sem sakaður er um svindlið. Þjóðþekktir einstaklingar eru í hópnum, til að mynda forstjórinn Hreggviður Jónsson, fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann Eiðsson og lögmaðurinn Sigurður Kári Kristjánsson.
Golfhópurinn segir þó að málið sé rugl, það sé byggt á misskilningi og að því sé lokið.