Erlendur ferðamaður handleggsbrotnaði í fjórhjólsslysi við Hópsnes í gær. Missti hann stjórn á hjólinu svo það valt með fyrrgreindum afleiðingum. Þetta er annað fjórhjólaslysið í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Í hinu fyrra var tvennt á hjólinu, ökumaðurinn missti stjórn á því og valt það yfir þau. Fólkinu var komið undir læknis hendur en meiðsli voru ekki alvarleg.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum til fjölmiðla. Þar segir einnig frá aftanákeyrslu á Reykjanesbraut í gær. Ökumaður bílsins sem ekið var á var fluttur á Heilsugæslustofnun Suðurnesja með sjúkrabíl, en hinn var handtekinn þar sem hann játaði neyslu á fíkniefnum.
Þá segir frá því að í Sandgerði var ekið á fótgangandi vegfaranda í vikunni og hlaut viðkomandi opið beinbrot. Einnig datt unglingspiltur af vespu og hlaut skrámur á handlegg og fæti.
Mikið magn kannabisefna fannst í geymslu íbúðarhúsnæðis í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni þegar þar var gerð húsleit. Að auki fundust þar tól ætluð til undirbúnings fíkniefnasölu. Fjármunir fundust einnig í geymslunni og hjá húsráðanda sem var handtekinn, grunaður um sölu fíkniefna. Hann játaði eign sína á efnunum en neitaði að stunda sölu.
Karlmaður sem var að koma frá Amsterdam í gær reyndist vera með kannabisefni í fórum sínum þegar tollverðir stöðvuðu hann. Tekin var af honum vettvangsskýrsla.
Ennfremur var tilkynnt um þjófnað á fjórum Philips útikösturum úr garði. Verðmæti hvers kastara er rúmlega 16 þúsund krónur.