Fimm ökumenn voru handteknir í gærkvöldi og nótt grunaðir um að vera undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Einn þeirra er einnig grunaður um vörslu fíkniefna og tveir óku sviptir ökuréttindum. Þessu til viðbótar var einn ökumaður kærður fyrir að aka sviptur ökuréttindum.
Tilkynnt var um innbrot í vinnuskúr í miðborginni í gærkvöldi. Gerandinn var farinn af vettvangi þegar lögreglan kom. Ekki er vitað hvort einhverju var stolið.
Á fimmta tímanum í nótt var maður í annarlegu ástandi handtekinn í Laugarneshverfi. Hann hafði veist að fólki. Hann var vistaður í fangageymslu.
Einn ökumaður var kærður fyrir of hraðan akstur í Laugarneshverfi í nótt en hraði bifreiðarinnar sem hann ók mældist 112 km/klst en leyfður hámarkshraði er 60 km/klst.