fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Mikill hagnaður Icelandair á þriðja ársfjórðungi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 20. október 2021 18:17

Bogi Nils Bogason.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Icelandair Group skilaði 2,5 milljarða króna (19,6 milljóna dala) hagnaði á þriðja ársfjórðungi 2021 samkvæmt tilkynningu sem félagið birti í Kauphöllinni rétt í þessu.

Mikill uppgangur í fraktflutningum á tímabilinu ræður meðal annars þessari stöðu en Icelandair jók umsvif sín einnig í millilandaflugi. Um þetta segir í tilkynningunni:

„Icelandair hélt áfram að auka umsvif sín í millilandaflugi í fjórðungnum með flug til 34 áfangastaða, 11 í Norður Ameríku og 23 í Evrópu. Heildarfjöldi farþega fjórfaldaðist miðað við þriðja ársfjórðung í fyrra og nam 700 þúsund. Þar af voru ferðamenn til Íslands um 52%. Sætanýting var 68,2% og stundvísi 86%. Í innanlandsflugi hefur farþegafjöldi þegar náð því sem hann var fyrir Covid og voru farþegar um 67 þúsund á fjórðungnum.

Mikill uppgangur hefur verið í fraktflutningum og á þriðja ársfjórðungi skilaði Icelandair Cargo hærri tekjum og flutningsmagn var meira en fyrir Covid faraldurinn. Fraktflutningar milli Evrópu og Norður Ameríku jukust töluvert á fjórðungnum og voru um 10% af heildarflutningum samanborið við 3% á árinu 2020.

Eftir aukningu í bókunum fyrri hluta sumars, hægði á bókunum í ágúst og september vegna áhrifa Delta afbrigðisins. Aðstæður hafa batnað á ný og hefur bókunarflæði verið sterkt undanfarnar vikur. Opnun Bandaríkjanna fyrir evrópska ferðamenn er mjög jákvætt skref í áframhaldandi uppbyggingu félagsins þar sem allir markaðir þess verða opnir í kjölfarið. Flugframboð félagsins á þriðja ársfjórðungi var um 50% af framboði félagsins á sama tíma 2019. Í fjórða ársfjórðungi mun félagið auka framboð sitt í um 65% af framboðinu 2019 og fljúga til 11 áfangastaða í Norður Ameríku og 15 í Evrópu. Áhrifa heimsfaraldursins og tilheyrandi ferðatakmarkana mun þó halda áfram að gæta og hátt eldsneytisverð mun hafa neikvæð áhrif á afkomu félagsins í fjórða ársfjórðungi.“

Bogi Nils Bogason forstóri segir ánægjulegt að Icelandair skili núna hagnaði í fyrsta sinn í tvö ár:

„Við þrefölduðum flugframboð í millilandaflugi á milli ára og nam framboðið um 50% af framboði sama tímabils 2019 sem er mjög góður árangur í ljósi krefjandi aðstæðna. Sætanýting var góð í júlí og ágúst og við fluttum fleiri farþega í júlímánuði en fyrstu sex mánuði ársins samanlagt. Þá tók flug yfir Atlantshafið verulega við sér þegar Evrópa opnaði á ferðalög fyrir bandaríska ferðamenn. Við erum stolt af því að hafa náð 86% stundvísi í fjórðungnum þrátt fyrir flóknar ferðatakmarkanir og mikla  aukningu í flugi á stuttum tíma. Ástæða þessa árangurs er fyrst og fremst sá sveigjanleiki sem félagið býr yfir – bæði leiðakerfisins og ekki síður starfsfólks okkar sem ég vil þakka fyrir frábæra frammistöðu, úthald og útsjónarsemi við að bregðast hratt við breytingum á mörkuðum okkar og koma auga á öll möguleg tækifæri.“

Þrátt fyrir að Icelandair sé á réttri leið hafði Covid-faraldurinn mikil áhrif á starfsemi félagsins, segir Bogi. Bókunarstaða næstu mánuði er hins vegar góð:

„Þrátt fyrir að við séum á réttri leið, hélt heimsfaraldurinn áfram að hafa áhrif á á starfsemi félagsins. Útbreiðsla Delta afbrigðisins hægði á bókunum í lok fjórðungsins en þær hafa nú aftur tekið við sér. Eftirspurn eftir frakflutningum var  áfram sterk. Icelandair Cargo sérhæfir sig meðal annars í flutningi á ferskum íslenskum fiski og styður þannig við þá mikilvægu útflutningsgrein okkar Íslendinga. Við nýtum öflugt leiðakerfi okkar til þess að koma ferskum fiskafurðum á fjölbreytta markaði beggja vegna Atlantshafsins og á disk neytandans á innan við 48 tímum en þessar vörur eru jafnframt með lágt kolefnisfótspor samanborið við aðra próteingjafa.

Bókunarstaða félagsins er góð næstu mánuði og opnun landamæra í Bandaríkjunum þýðir að við getum farið að nýta leiðakerfi félagsins til fulls í fyrsta skipti síðan í mars 2020. Það er mikilvægt fyrir endurreisn ferðaþjónustunnar á Íslandi að við tryggjum samkeppnishæfni Íslands sem ferðamannalands. Lykilþáttur í því er að íslensk stjórnvöld tryggi að þær ferðatakmarkanir sem eru í gildi á landamærum hér á landi séu einfaldar, ferlið sé skilvirkt og í samræmi við þær reglur sem gilda í löndunum í kringum okkur. Við hjá Icelandair erum vel í stakk búin til að grípa þau tækifæri sem munu gefast á næstu mánuðum með öfluga innviði, sterka lausafjárstöðu, reynslumikið starfsfólk og með því að nýta þann mikla sveigjanleika sem félagið býr yfir.“

Vefstreymi á kynningu á uppgjöri þriðja ársfjórðungs verður fimmtudaginn 21. október kl. 8:30 og er það aðgengilegt á heimasíðu Icelandair Group. Þar munu Bogi Nils Bogason forstjóri og Ívar S. Kristinsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs kynna rekstrarniðurstöður og svara spurningum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi