Lögreglan hafði afskipti af ölvuðu ungmenni sem reyndi að komast inn á skólaball. Viðkomandi viðhafði ógnandi hegðun gagnvart lögreglumönnum. Var hann fluttur á lögreglustöð og sóttu foreldrar hann.
Einn var staðinn að þjófnaði úr matvöruverslun. Málið var afgreitt á vettvangi.
Afskipti voru höfð af karli og konu vegna brots á lyfjalögum og vörslu fíkniefna.
Þrír voru handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Einn þeirra reyndist vera sviptur ökuréttindum og var einnig kærður fyrir brot á vopnalögum og fyrir vörslu fíkniefna. Annar var einnig kærður fyrir vörslu fíkniefna.