Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, hefur sent samúðarkveðju til Kari Anne Sand borgarstjóra í Kongsberg vegna fjöldaárásarinnar í gærkvöldi.
Samfélagið í Kongsberg er í miklu áfalli eftir atburði gærkvöldsins, en þá myrti hinn 37 ára gamli Espen Andersen Brathen minnst fimm vegfarendur en hannar var annars vegar vopnaður boga og örvum og hins vegar vopnaður hníf. Fjöldi annara eru særðir eftir árásina.
Dagur hefur því sent borgarstjóra Kongsberg samúðarkveðju fyrir hönd Reykvíkinga.
„Fyrir hönd allra Reykvíkinga sendi ég innilegar samúðarkveðjur vegna þeirra voðaverka sem áttu sér stað í Kongsberg í gærkvöldi.
Við samhryggjumst fjölskyldum þeirra sem særðust og féllu fyrir hendi árásarmannsins, og öllum íbúum Kongsberg sem eiga nú um sárt að binda.
Við munum aldrei skilja ástæðuna að baki slíkum glæp. Borgir heimsins verða að standa þétt saman í baráttunni við að uppræta hatur og illsku í samfélagi okkar.“
Ekki er á hreinu hvort að um hryðjuverkaárás hafi verið að ræða. Espen mun undirgangast geðmat á næstunni samkvæmt lögreglunni í Kongsberg. Hann var í kjölfar árásarinnar yfirheyrður í ríflega þrjár klukkustundir og hefur að sögn verjenda hans sýnt samstarfsvilja.