Nú þegar styttist óðum í tveggja ára afmæli Covid faraldursins er óneitanlega mörgum tekið að leiðast umræðan, aðgerðirnar, takmarkanirnar og helstu leikendur í viðbrögðum ríkisins við faraldrinum.
Þannig sagði DV til dæmis frá því í gær að Sigurður Brynjar Pálsson, forstjóri BYKO, hefði haft hörð orð um áframhaldandi takmarkanir á Íslandi. „Nú er mál að linni,“ sagði Sigurður meðal annars.
Þá hefur nafnlaus Twitter reikningur undir nafninu „Sóttólfur“ vakið umtalsverða athygli undanfarið. Færslurnar sem birtar eru á síðunni eru bersýnilega skrifaðir í háði. Í lýsingu á reikningnum segir að þar sé á ferð „helsti sérfræðingur Íslands í vísindum og eini faraldsfræðingurinn sem skiptir máli.“
Svo virðist sem hinn nafnlausi höfundur hafi hafið störf þann 19. ágúst síðastliðinn og verið býsna iðinn síðan. Frá því um miðjan ágúst hefur hann birt heilar 332 færslur á Twitter, og er af nógu að taka:
Það er mjög mikilvægt að allir séu með grímu á íþróttaleikjum! Sérstaklega þegar leikirnir eru úti og fáir á vellinum. Svo má alls ekki kaupa veitingar í hálfleik, þá fyllist spítalinn! https://t.co/OaOIa4aWGH
— Sóttólfur 👨🔬 (@sottolfur) August 20, 2021
Í nýjasta minnisblaðinu legg ég einmitt til að banna allar ferðir til DK svo við þurfum ekki að hlusta á svona rugl. Þarf einnig að skoða þessar sjónvarpsútsendingar frá enska boltanum, þaðan koma bara vond áhrif! https://t.co/mOEJuGuALD
— Sóttólfur 👨🔬 (@sottolfur) August 23, 2021
Mikilvægt að fólk skilji að danska covid er ekki sama covid og á Íslandi og dönsk vísindi eru ekki sömu og íslensk vísindi. (Ég er vísindi). https://t.co/4aGWuMKvE5
— Sóttólfur 👨🔬 (@sottolfur) August 27, 2021
Hvað gerðist!?!? 😡 allt góða fólkið að tala um einhvern skandal í KSÍ og engin að tala um hvað Covid er hættulegt. Eru allir búnir að gleyma því að landamærin eru opin og veiran streymir inn! Ég hugsa að ég boði upplýsingafund og minni alla á Delta++ afbrigðið. pic.twitter.com/YNBrKABYCa
— Sóttólfur 👨🔬 (@sottolfur) August 30, 2021
Þar sem algengasta einkenni veirunnar er einkennaleysi þessa dagana er mjög mikilvægt að allir þeir sem vöknuðu sérstaklega hressir og heilbrigðir í morgun fari strax í skimun, þið eruð mjög líklega smitaðir! pic.twitter.com/aRoxdZAJaH
— Sóttólfur 👨🔬 (@sottolfur) September 1, 2021
Egill ætti að vita að það er lítil sem engin smithætta á barnum fyrir klukkan 23, veiran er bara ekki þar. Sama er ekki hægt að segja um hárgreiðslustofur enda hef ég þurft að banna slíka starfsemi áður. Veiran elskar nýklippt hár.. ✂️😷 https://t.co/ruaDRWEx6F
— Sóttólfur 👨🔬 (@sottolfur) September 3, 2021
Afsakið hvar lærðir þú vísindi? Ert þú sérfræðingur eins og ég? 🤨 Stay in your lane. 💅💅💅 https://t.co/y1IZw9saen
— Sóttólfur 👨🔬 (@sottolfur) September 5, 2021
Ástæðan fyrir því að það er enn grímuskylda í Hagkaup er að það er útsala á ilmvötnum. Við í bransanum köllum þetta „peak science“ 👨🔬https://t.co/OtlV0h96hv
— Sóttólfur 👨🔬 (@sottolfur) September 6, 2021
— Sóttólfur 👨🔬 (@sottolfur) September 18, 2021
Loksins komst ég með fjölskylduna í frí 👍 (til Grænlands 😷) pic.twitter.com/h7LYdcCvOV
— Sóttólfur 👨🔬 (@sottolfur) September 18, 2021
Jæja þá eru allir að fara deyja í Hollandi. ☠ https://t.co/evEXgMUlhn
— Sóttólfur 👨🔬 (@sottolfur) September 19, 2021
Þarf ég að minna fólk á að drepsóttin er sérstaklega hættuleg fyrir einkennalausa! ☠️ Að klára þetta af og halda áfram með lífið má aldrei verða lausnin! 🙏https://t.co/8sF6ofTC9r
— Sóttólfur 👨🔬 (@sottolfur) September 20, 2021
Ætla þeir í alvörunni ekki að hlusta á mig! 😡 pic.twitter.com/yn4iRTz0mH
— Sóttólfur 👨🔬 (@sottolfur) September 24, 2021
Samkvæmt nýjustu vísindum frá Ástralíu þá virkar best að berja veiruna úr fólki.😍🇦🇺❤️🇰🇵 https://t.co/zsbYTA3jCO
— Sóttólfur 👨🔬 (@sottolfur) September 25, 2021
Þó covid sé búið í 🇧🇻🇩🇰🇸🇪🇫🇴🇬🇧 þá erum við bara rétt að byrja hér! 😘https://t.co/6uZuAt0E8z
— Sóttólfur 👨🔬 (@sottolfur) September 28, 2021
Þeir sem vilja eðlilegt líf geta farið annað með næstu vél ✈️ Í minni framtíðarsýn er Ísland fyrst og fremst sóttvarareyja!https://t.co/dez2OTo5mq
— Sóttólfur 👨🔬 (@sottolfur) September 29, 2021
Ég keypti grímur og spritt fyrir ferðagjöfina. 😷🙏
— Sóttólfur 👨🔬 (@sottolfur) October 1, 2021