Snælduvitlaust veður gengur nú yfir Austurlandið og hafa björgunarsveitir verið kallar út vegna foktjóns . Mývatns- og Möðrudalsöræfum, Vopnafjarðarheiði, Ólafsfjarðarmúla og Víkurskarði hefur verið lokað fyrir umferð og eru vegfarendur eru beðnir um að vera ekki á ferðinni nema brýna nauðsyn beri til.
Appelsínugular viðvaranir eru í gildi á öllu Austurlandi þar sem gengur yfir norðvestan stormur með snjókomu og skafrenning. Gildir viðvörunin til 18:00 í kvöld en eftir þá á að lægja.
Samkvæmt frétt Austurfréttar hefur björgunarsveitin Gerpir í Neskaupstað sinnt ýmsum verkefnum í dag. „Við höfum verið á ferðinni með 10-15 manns síðan um klukkan átta í morgun. Það er ýmislegt á ferðinni enda snarvitlaust veður í bænum,“ sagði Sveinn Halldór Oddsson Zoega í svæðisstjórn björgunarsveitanna á Austurlandi í samtali við Austurfrétt.
Truflanir hafa verið á rafmagni, á Fáskrúðsfirði, Kirkjubæjarklaustri og Breiðdal.
Vindhraði mældist mest 40,1 m/s í hviðu á Vatnsskarði eystra samkvæmt tölum Veðurstofu.
Vindaspá á morgun 10-01-2021 pic.twitter.com/41sDJC7F8N
— Veðrið á morgun (@VedurGifAMorgun) January 9, 2021