fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Íslenskur kennari ákærður fyrir kynferðisleg og „ruddaleg“ skilaboð á Facebook

Heimir Hannesson
Mánudaginn 4. janúar 2021 21:00

mynd/samsett

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir kynferðisbrot gegn barni annars vegar og brot gegn barnaverndarlögum með því að senda barninu sem honum hafði verið trúað fyrir til kennslu ósiðleg skilaboð á samfélagsmiðlinum Facebook.

Segir í ákærunni að brotin hafi staðið yfir frá því í nóvember 2017 og fram til 11. maí 2018. Ákæran er í tveimur liðum og segir í fyrri lið hennar að hann sé sakaður um að hafa brotið kynferðislega gegn stelpunni með því að hafa ítrekað áreitt hana kynferðislega, með kynferðislegum ummælum og kynferðislegu myndefni og þannig sært blygðunarsemi hennar og sýnt henni ósiðlegt athæfi.

Þá er maðurinn í seinni lið ákærunnar sagður hafa brotið barnaverndarlög með því að hafa ítrekað sent stelpunni skilaboð með „ummælum, táknum og myndefni þar sem hæðst er að jaðarsettum hópum, s.s. á grundvelli fötlunar, þjóðernis, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða og kynhneigðar“ og þannig sýnt henni ruddalegt og ósiðlegt athæfi.

Málið verður þingfest í Héraðsdómi Norðurlands eystra næstkomandi miðvikudag, 6. janúar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pétur Einarsson látinn
Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi