fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Finnur segir þetta valda vonbrigðum – „Dylgjur og falskar ásakanir“

Máni Snær Þorláksson
Fimmtudaginn 21. janúar 2021 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Undanfarna áratugi hafa jákvæðar fréttir frá Ísraelsríki sjaldan birst í almennum fjölmiðlum. Það kom því ánægjulega á óvart að íslenskir fjölmiðlar hafi á dögunum fjallað um góðan árangur Ísraelsríkis í bólusetningarherferð gegn Covid-19.“

Svona hefst pistill sem Finnur Thorlacius Eiríksson, sem skrifar fyrir hönd MIFF (Með Ísrael fyrir friði) á Íslandi, skrifar en pistillnn birtist á Vísi. „Nú hafa yfir 32% ísraelskra ríkisborgara fengið fyrri skammt bóluefnisins en hvergi í heiminum er það hlutfall hærra.1 Engu að síður virðast andstæðingar Ísraels staðráðnir í því að snúa hverju sem gæti talist jákvætt við landið upp í neikvæðni, jafnvel þótt það krefjist þess að sannleikanum sé hagrætt,“ segir hann.

„Það er ekkert sem bendir til þess“

Finnur segir að undanfarnar vikur hafi félagasamtök andsnúin Ísraelsríki, bæði hér á landi og erlendis, kvartað sáran yfir því að ísraelsk yfirvöld hafi ekki hafið bólusetningu á íbúum palentínsku sjálfstjórnarsvæðanna. „En þegar nánar er að gáð kemur í ljós að þessi gagnrýni er með öllu ómakleg og nægir að nefna tvær ástæður því til stuðnings,“ segir hann og nefnir þessar tvær ástæður.

„Í fyrsta lagi verður að teljast afar ólíklegt að Palestínska heimastjórnin (PA) myndi leyfa ísraelskum yfirvöldum að bólusetja Palestínumenn. Öll slík samvinna er talin vera óbein viðurkenning á Ísraelsríki (e. normalization). Í fyrra hafnaði heimastjórnin hjálpargögnum frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum vegna aðkomu Ísraels að sendingunni. Það er ekkert sem bendir til þess að afstaða þeirra hafi breyst undanfarna mánuði.“

Finnu nefnir svo hina ástæðuna. „Í öðru lagi bera ísraelsk yfirvöld ekki ábyrgð á bólusetningu íbúa sjálfstjórnarsvæðanna því þeir eru ekki ísraelskir ríkisborgarar heldur palestínskir. Samkvæmt samkomulagi á milli fulltrúa Ísraels og Palestínu frá árinu 1993 átti ábyrgð á heilbrigðisþjónustu Palestínumanna færast til heimastjórnarinnar eftir brotthvarf Gyðinga frá Gazasvæðinu og Jeríkó. Því ferli lauk árið 2005 og síðan þá hefur heilbrigðisþjónustan á sjálfstjórnarsvæðunum verið ábyrgð heimastjórnarinnar.“

Segir allar vangaveltur óþarfar

Finnur segir að það komi engum á óvart að félagasamtökin sem hann ræðir um taki þessa orðræðu upp á sína arma. „Það sem raunverulega veldur vonbrigðum er að almennir fjölmiðlar og þekkt mannréttindasamtök taki undir þennan málflutning,“ segir hann. „Til dæmis birtist nýlega frétt á mbl.is um bólusetningu fanga í Ísraelsríki þar sem ásökunin um aðskilnaðarstefnu við framkvæmd bólusetninga var lögð fram án frekari athugasemda. Líkt og annars staðar var tilvist Palestínsku heimastjórnarinnar og ábyrgð hennar gagnvart Palestínumönnum einfaldlega hundsuð.“

Þá segir Finnur að það hafi legið á milli hluta í nánast öllum fréttaflutningi af málinu að palestínska heimastjórnin sé búin að tryggja bóluefni fyrir Palestínumenn. „Fyrir viku síðan var gerður samningur við Rússa um innflutning á Sputnik V bóluefninu og fyrstu skammtarnir eiga að berast til sjálfstjórnarsvæðanna í byrjun febrúar. Allar vangaveltur um að íbúar sjálfstjórnarsvæðanna verði ekki bólusettir eru því með öllu óþarfar,“ segir Finnur.

„Dylgjur og falskar ásakanir“

Að lokum segist Finnur bera að jafnaði virðingu fyrir fjölmiðluym og því aðhaldi sem þeir veita yfirvöldum og þjóðfélagshópum. „Ég er þeirrar skoðunar að íslenskir fjölmiðlar séu almennt frekar áreiðanlegir. Samt sem áður hefur umfjöllun þeirra um málefni Ísraelsríkis oft verið undantekning frá þeirri reglu. Falskar ásakanir um aðskilnaðarstefnu við framkvæmd bólusetninga eru aðeins smávægileg birtingarmynd mun stærra vandamáls – undirliggjandi tortryggni og neikvæðni gagnvart öllu sem tengist Ísraelsríki,“ segir hann.

„En þegar dylgjur og falskar ásakanir eru lagðar til hliðar tala staðreyndirnar sínu máli. Ísrael hefur veitt besta fordæmið í hraðri og skipulegri bólusetningu heils samfélags. Það má læra margt af útsjónarsemi Ísraelsmanna í þessu máli ef við viljum segja skilið við þennan leiða faraldur í náinni framtíð.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð
Fréttir
Í gær

Lögregla fann 29 dauða nautgripi á bæ á Norðurlandi Vestra

Lögregla fann 29 dauða nautgripi á bæ á Norðurlandi Vestra
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“