Mikil ásókn er í embætti forsetaritara sem auglýst var laust til umsóknar í nóvember sl. en listi yfir umsækjendur var í dag birtur á vefnum forseti.is.
Meðal umsækjenda eru Urður Gunnarsdóttir, fyrrum uppfulltrúi Utanríkisráðuneytisins, Nína Björk Jónsdóttir forstöðumaður viðskiptaþjónustunnar í utanríkisráðuneytinu og höfundur Íslandsdætra, Anna Sigrún Baldursdóttir aðstoðarmaður forstjóra Landspítalans, Kristján Guy Burgess fyrrum framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar og aðstoðarmaður Össurar Skarphéðinssonar er hann var utanríkisráðherra, Sigurður Nordal hagfræðingur og fyrrum fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu, og Davíð Stefánsson fyrrum ritstjóri Fréttablaðsins. Þá vekur athygli að bæði Bergdís Ellertsdóttir sendiherra Íslands í Washington, og Hreinn Pálsson staðgengill sendiherra í sendiráði Íslands í borginni sóttu jafnframt bæði um starfið.
Starfinu hefur Örnólfur Thorsson sinnt í 15 ár en hann mun hætta störfum í mars á þessu ári en verður embættinu innan handar til 1. ágúst n.k. Starfið er nokkuð umfangsmikið og meðal embættisverka forsetaritara er stjórn fjármála, mannauðs og dagleg störf á skrifstofu forseta og á Bessastöðum. Þá annast forsetaritari samskipti við Alþingi, ráðuneyti, fjölmiðla og sendiherra erlendra ríkja.
Æskilegar hæfnikröfur eru háskólamenntun sem nýtist í starfi, fjölþætt reynsla af stjórnun, störf á alþjóðavettvangi, mannauðsstjórnun og stefnumótun, leiðtogahæfni og færni í mannlegum samskiptum. Þá er staðgóð þekking á íslenskri stjórnskipun og stjórnskipun sögð æskileg. Umsækjendur skulu hafa afar gott vald á íslenskri og enskri tungu í ræðu og riti, auk færni í a.m.k. einu öðru Norðurlandamáli.
Umsækjendur eru
Agnar Kofoed-Hansen
Andrés Pétursson
Anna Sigrún Baldursdóttir
Auðbjörg Ólafsdóttir
Auður Ólína Svavarsdóttir
Ásgeir B. Torfason
Ásgeir Sigfússon
Ásta Magnúsdóttir
Ásta Sól Kristjánsdóttir
Bergdís Ellertsdóttir
Birgir Hrafn Búason
Birna Lárusdóttir
Björg Erlingsdóttir
Dagfinnur Sveinbjörnsson
Davíð Freyr Þórunnarson
Davíð Stefánsson
Finnur Þ. Gunnþórsson
Gísli Ólafsson
Gísli Tryggvason
Glúmur Baldvinsson
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
Guðjón Rúnarsson
Guðný Káradóttir
Guðrún Björk Bjarnadóttir
Guðrún E. Sigurðardóttir
Gunnar Þorri Þorleifsson
Gunnar Þór Pétursson
Hanna Guðfinna Benediktsdóttir
Hans F.H. Guðmundsson
Hildur Hörn Daðadóttir
Hreinn Pálsson
Ingibjörg Ólafsdóttir
Jóhann Benediktsson
Jóhanna Bryndís Bjarnadóttir
Jörundur Kristjánsson
Kristján Guy Burgess
Lilja Sigrún Sigmarsdóttir
Magnús K. Hannesson
Margrét Hallgrímsdóttir
Margrét Hauksdóttir
Matthías Ólafsson
Monika Waleszczynska
Nína Björk Jónsdóttir
Pétur G. Thorsteinsson
Rósa Guðrún Erlingsdóttir
Salvör Sigríður Jónsdóttir
Sif Gunnarsdóttir
Sigríður Helga Sverrisdóttir
Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir
Sigurður Nordal
Sigurjón Sigurjónsson
Sigurjóna Sverrisdóttir
Sólveig Kr. Bergmann
Stefán Vilbergsson
Steinar Almarsson
Urður Gunnarsdóttir
Valdimar Björnsson
Þorgeir Pálsson
Þorvaldur Víðisson
Þóra Ingólfsdóttir