Maður í annarlegu ástandi var handtekinn í Kópavogi í nótt eftir að hafa gert tilraun til að ræna annan mann með því að ógna honum með skærum. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Þolandinn náði að forða sér á hlaupum og hringja í lögreglu.
Alls voru 90 mál bókuð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá því klukkan 17:00 í gær þar til kl. 05:00 í nótt.
Þrír voru handteknir í Hafnarfirði vegna innbrots og þjófnaðar og fannst talsvert magn af þýfi hjá þremenningunum og lagði lögregla hald á það. Þeir voru allir þrír vistaðir í fangaklefum vegna málsins.
Tveir voru handteknir eftir að hafa verið stöðvaðir af lögreglu í Kópavogi á stolinni bifreið.
Árekstur varð á Hafnarfjarðarvegi vegna hálku en engin slys urðu á fólki. Skömmu eftir áreksturinn varð annað umferðaróhapp skammt frá þar sem ökumaður missti stjórn á bifreið sinni í hálkunni og ók á vegrið. Aftur urðu engin slys á fólki en bifreiðin er óökufær.
Eldur kviknaði í ruslagám við Stýrimannaskólann. Talið er að flugeldur hafi verið notaður til að þess að kveikja eldinn. Annars var nokkuð um tilkynningar vegna flugelda víðs vegar um borgina.
Alls voru átta ökumenn síðan stöðvaðir vegna ölvunar og/eða fíkniefnaaksturs.