Um klukkan 20 var ekið á mann á rafmagnshlaupahjóli í Hlíðahverfi. Engin slasaðist en bíllinn og hjólið skemmdust töluvert.
Á tíunda tímanum var tilkynnt um ofurölvi konu sem lá sofandi í aftursæti bifreiðar. Lögreglumenn vöktu konuna sem kannaðist ekkert við bifreiðina sem hún svaf í. Hún var færð á lögreglustöð því hún neitaði að veita umbeðnar upplýsingar um nafn og kennitölu. Þegar þangað var komið var hún reiðubúin til að veita þessar upplýsingar og var frjáls ferða sinna að því loknu.
Skömmu fyrir klukkan eitt í nótt var ökumaður handtekinn eftir að hraði bifreiðarinnar sem hann ók mældist 108 km/klst á Bústaðavegi en leyfður hámarkshraði þar er 60 km/klst. Ökumaðurinn er að auki grunaður um ölvun við akstur.
Tveir ökumenn voru handteknir síðdegis í gær og nótt grunaður um að vera undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Annar þeirra reyndist vera sviptur ökuréttindum og hinn án gildra ökuréttinda.