Myndband þar sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, borðar hrátt nautahakk með fingrunum hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlinum Twitter. Myndbandið er vægast sagt stórfurðulegt en þar má sjá Sigmund opna pakkningu af hráu nautahakki og borða það með því að nota ekkert nema guðsgafflana.
Sigmundur birti myndbandið á Instagram-síðu sinni fyrr í dag. „Þegar maður er úti í náttúrunni og enga leið til að elda… er mikilvægt að kjötið sé ÍSLENSKT,“ segir Sigmundur í texta sem sjá má í myndbandinu.
Haukur nokkur birti myndbandið á Twitter og fór það í kjölfarið á mikið flug á þeim miðli.
Við sjáum myndband: pic.twitter.com/y7U1nfA6rH
— Haukur Viðar (@hvalfredsson) August 5, 2021
Töluverður fjöldi fólks hefur endurbirt myndbandið á sinni Twitter-síðu og tjáð sig um það. Ljóst er að það hefur vakið mikla furðu landsmanna. „Á hvað var ég að horfa? Í hvaða samhengi var þetta gert? Í hvaða tilgangi? Hann er líka að gjörsamlega negla þessu í grímuna á sér. Ég skil ekkert,“ segir til að mynda einn netverji á Twitter.
Jón Bjarni, eitt vinsælasta ungstirni íslenska Twitter-heimsins hér á landi um þessar mundir, er á meðal þeirra sem tjá sig um málið. „Þetta er ástæðan af hverju Miðflokkurinn er bestur,“ segir hann.
Kolbrún Birna Hallgrímsdóttir Bachmann, laganemi og skipuleggjandi Druslugöngunnar, segir einnig sína skoðun á myndbandinu. „Ég neita að trúa því að þetta sé gott fyrir einhvern,“ segir Kolbrún. Heiðar nokkur er með athyglisverða kenningu í athugasemd við færslu Kolbrúnar, það er að með myndbandinu sé Miðflokkurinn að sækja atkvæði þeirra sem eru á móti veganisma.
„SDG sestur, jeppinn í gangi, einhver á upptökunni segir „ok“ og svo tekur við leiksigur manns að njóta íslenskra kjötafurða. Ooooog þúsund anti-vegan (markhópur miðflokks) atkvæði í hús,“ segir Heiðar.
Eva nokkur er á meðal þeirra sem endurbirtir færsluna en hún minnir fólk á þá stöðu sem Sigmundur var í hér á landi fyrir nokkrum árum. „Þessi maður var forsætisráðherrann okkar í heil þrjú ár. Bara svona ef að einhver skyldi vera búinn að gleyma,“ segir hún.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Sigmundur vekur athygli fyrir að borða hrátt nautahakk. Í janúar árið 2017 vakti það mikla athygli þegar hann sýndi nestið sem hann tók með sér á alþingi, hrátt nautahakk og kex. „Einn af mörgum kostum við íslenskt kjöt er að maður þarf ekki að elda það frekar en maður vill,“ sagði Sigmundur í Facebook-færslunni þar sem hann sýndi frá nestinu sínu.
Athygli vekur að í myndbandinu er Sigmundur ekki með kex, hann virðist því vera búinn að einfalda sitt einfalda nesti til muna.