Héraðsaksóknari hefur endurskoðað fyrri ákvörðun sína og gefið út ákæru á hendur Jóhannesi Tryggva Sveinbjörnssyni fyrir að nauðga konu á nuddstofu sinni fyrir níu árum síðan. RÚV greinir frá.
Eins og DV greindi frá í byrjun árs var Jóhannes Tryggvi dæmdur í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að nauða fjórum konum. Nauðganirnar áttu sér allar stað á nuddbekk Jóhannesar, en hann rak meðferðarfyrirtækið Postura og sagðist sérhæfa sig í meðferð við ýmsum stoðkerfakvillum. Meðferðin fór meðal annars fram í gegnum leggöng og endaþarm kvennanna. Jóhannes Tryggvi neitaði sök í málunum en framburður kvennannna var metinn trúverðugur.
Á fimmta tug kvenna gáfu sig árið 2017 og 2018 fram við Sigrúnu Jóhannsdóttur lögmann. Rúmlega 20 konur kærðu en að endingu var aðeins ákært í málum fjögurra kvenna.
Í áðurnefndri frétt RÚV kemur fram að þessi fimmta kona var í hópi þeirra sem kærðu Jóhannes Tryggva á sínum tíma en að héraðssaksóknari hafi ekki gefið út ákæru í málinu.
Konan hafi þó ekki gefist upp heldur kært ákvörðun til ríkissaksóknara sem að fól lögreglu að rannsaka málið að nýju. Það leiddi til þess að Héraðssaksóknari gaf út ákæru í málinu í maí.
Í ákærunni, sem DV óskað eftir en fékk ekki í hendur, kemur fram konan hafi tvívegis komið á nuddstofu Jóhannesar í byrjun árs 2012. Honum er gefið að sök að hafa í starfi sínu sem nuddari káfað á kynfærum hennar, rassi og brjóstum og sett fingur inn í leggöng henar, henni að óvörum, þar sem hún lá léttklædd á nuddbekk. Ákæran var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í morgun og hefur RÚV heimildir fyrir því að Jóhannesi hafi neitað sök.