fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fréttir

Ebba Margrét: „Við viljum að þeir sem bera ábyrgð á þessu klúðri axli ábyrgð“

Máni Snær Þorláksson
Fimmtudaginn 24. júní 2021 15:00

Ebba Margrét - Skjáskot/RÚV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Íslenskar konur eiga mun betra skilið á nú þegar konur sitja í æðstu embættum landsins sem lúta að heilbrigðismálum.“

Svona hefst pistill sem Ebba Margrét Magnúsdóttir, fæðinga og kvensjúkdómalæknir, skrifar en pistillinn birtist á Vísi í dag. Pistillinn fjallar um skimunina á leghálsakrabbameini hér á landi en Ebba segir að málið sé klúður.

„Hálfu ári frá því að Leitarstöð Krabbameinsfélagsins hætti er ekki hægt að segja annað en að flutningur á skimun fyrir leghálskrabbameini til Heilsugæslunnar sé eitt allsherjarklúður. Mikið hefur verið rætt um þetta mál opinberlega en ekki sér enn þá til úrbóta í þessum efnum og enginn axlar ábyrgð. Á meðan bíða konur í óvissu og við læknar sem sinnum þessari þjónustu einnig,“ segir Ebba.

Hún segir samstarf sjálfstætt starfandi kvensjúkdómalækna og Leitarstöðvarinnar hafa gengið vel en kvensjúkdómalæknarnir tóku um helming sýna þegar Leitarstöðin var starfandi. Ebba bendir á að ekkert sé minnst á það að áfram sé hægt að fá þessa þjónustu hjá kvenjúkdómalæknum þegar konur eru boðaðar til sýnatöku.

„Þið konur megið vita að þið eruð velkomnar til kvensjúkdómalækna og við tökum gjarnan sýni um leið og við sinnum öðrum læknisverkum.“

„Fádæma framkoma sem við læknar hljótum að mótmæla kröftuglega“

Þá veltir Ebba því fyrir sér hvort það standist jafnræðisreglur að þessi þjónusta sé niðurgreidd á einums tað en ekki öðrum. Hún spyr yfirvöld beint að þessu í pistlinum og talar svo um flutningana á sýnunum.

„Sýnin fara svo í flug erlendis en þurfa samt ekki að sýna fram á bólusetningarvottorð. En við þá flutninga þarf að breyta kennitölum og sú tilfærsla öll bíður upp á mistök og rugling. Tæki eru til hér á landi til að mæla HPV veiruna og þekking á að skoða frumustrok hér heima má ekki glatast. Landspítalinn hefur sagst geta tekið þetta að sér og það er bara þriggja mánaðar uppsagnarfrestur við Dani sem sinna þessu núna. Við Íslendingar höfum í áratugi sinnt læknisverkum með góðum árangri þó fá séum og höfum talið það kost að halda kunnáttu og færni i landinu.“

Ebba segir svo að það sé annar óvissuþáttur með það hvenær svör við spurningum málsins berast. „Ekki allir sýnatökuaðilar sem sitja við sama borð þar. Við læknar fáum svörin á Excel skjali sem við getum bara skoðað einu sinni og þá látið okkar skjólstæðinga vita um hver næstu skref eru. Konur eiga svo að seint um síðir að sjá niðurstöður sínar inn á island.is,“ segir hún.

„Samhæfingarmiðstöð heilsugæslunnar sem á að sjá um þessa starfsemi hefur nú undanfarið tekið þá ákvörðun að henda sumum sýnum sem við læknar höfum tekið því að þeirra mati eru þau óþörf. Þarna er ekki bara verið að vanvirða konur sem koma til lækna með kvartanir og þess vegna eru tekin sýni frá leghálsi heldur er verið að gera lítið úr læknisfræðilegu mati kvensjúkdómalækna og þeim sent skammarbréf. Fádæma framkoma sem við læknar hljótum að mótmæla kröftuglega.“

„Við viljum að þeir sem bera ábyrgð á þessu klúðri axli ábyrgð“

Að lokum segir Ebba að það sé ekki nóg að forstjóri heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hafi beðist opinberlega afsökunar á þessum töfum á svörum. Þá sé það heldur ekki nóg að hann hafi viðurkennt illa undirbúinn flutning verkefnisins til heilsugæslunnar.

„Íslenskar konur eiga betra skilið en að karllæg kerfissjónarmið séu látin ganga fyrir heilsu kvenna. Það þarf ekki að byrja að þarfagreina verkefnið löngu eftir að það er byrjað,“ segir hún og kemur svo með kröfur.

„Við viljum að sýnin séu skoðuð hérlendis og samningnum við Dani sagt upp.

Við viljum að konum landins sé sagt satt um það hvert þær geti mætt í skoðun og kostnaðurinn fyrir þær sé sá sami.

Við viljum að svörin berist hratt og skilvirkt til kvenna.

Við viljum að leitarsaga kvenna sé skýr og aðgengileg.

Við viljum að þeir sem sinni þessari þjónustu og hafa eftirlit með henni séu ekki beggja vegna borðsins.

Við viljum að þeir sem bera ábyrgð á þessu klúðri axli ábyrgð.“

Ebba botnar svo pistilinn með því að benda á að það sé hægt að leysa málið. „Það er ekkert mál að leysa þetta mál sem fyrst og ætti að vera á forgangslista hjá þeim konum sem gegna starfi landlæknis, heilbrigðisráðherra og forsætisráðherra. En þá þurfa ráðandi konur að þora.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Fjallar um fordóma gegn Baldri – „Hafa litlu mennirnir fengið háværari rödd?“

Fjallar um fordóma gegn Baldri – „Hafa litlu mennirnir fengið háværari rödd?“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Yfirmaður á hjúkrunarheimili snýr til baka úr leyfi í skugga ásakana um áreitni við ungt starfsfólk

Yfirmaður á hjúkrunarheimili snýr til baka úr leyfi í skugga ásakana um áreitni við ungt starfsfólk
FréttirPressan
Í gær

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?
Fréttir
Í gær

Heilt íþróttafélag snerist gegn 12 ára dreng sem sakaði Dalslaugarníðinginn um kynferðisbrot – „Ég vissi að perrinn næðist, gæti ekki hætt“

Heilt íþróttafélag snerist gegn 12 ára dreng sem sakaði Dalslaugarníðinginn um kynferðisbrot – „Ég vissi að perrinn næðist, gæti ekki hætt“