Tillaga Sögu Maríu Sæþórsdóttur, fulltrúa í ungmennaráði Laugardals, Háaleitis og Bústaða um að tíðarvörur verði grunnskólanemum borgarinnar til boða án endurgjalds hefur verið samþykkt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
„Frá og með næsta hausti verða tíðavörur í boði fyrir grunnskólanemendur í borginni án endurgjalds. Tillaga Sögu Maríu Sæþórsdóttur, fulltrúa í ungmennaráði Laugardals, Háaleitis og Bústaða þess efnis var samþykkt á fundi skóla- og frístundaráðs 23. mars.
Saga María lagði fram tillögu sína á fundi ungmennaráða og borgarstjórnar vorið 2020 og var skóla- og frístundasviði falið að veita auknu fjármagni til að auðvelda aðgengi barna og ungmenna að fríum tíðavörum frá og með hausti 2020.“
Í tilkynningu segir jafnframt:
„Kynþroskaskeiðið geti verið viðkvæmur og flókinn tími fyrir börn og ungmenni á margan hátt. Sum börn séu afar ung þegar kynþroskatímabilið hefjist og það geti jafnvel munað 5-6 árum á milli einstaklinga hvenær ferlið fari af stað. Þegar blæðingar hefjist sé algengt að þær séu óreglulegar og mismiklar fyrstu árin. Það geti aukið verulega á kvíða og streitu ungra einstaklinga að óttast að byrja á blæðingum í skólanum eða að þurfa að fara á salernið og hafa ekki tíðavörur meðferðis.“ Árið 2018 hófst tilraunaverkefni um aukna kynfræðslu í tveimur grunnskólum borgarinnar og var samhliða boðið upp á fríar tíðarvörur í skólanum og félagsmiðstöðvum þeirra. Reynslan var verkefninu var afar góð og þótti nemendum með blæðingar öryggi í því að geta gengið að tíðavörum vísum.
Áætlaður heildarkostnaður vegna þessara breytinga fyrir alla grunnskóla og félagsmiðstöðvar borgarinnar er á bilinu 650.000-750.000 á ári.
Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, lagði fram breytingatillögu við fjárlagafrumvarp í desember þar sem hann lagði til að 280 milljónir yrðu eyrnamerktar til að gera tíðarvörur aðgengilegar fyrir ákveðna hópa án endurgjalds, meðal annars nemendum í grunn- og framhaldsskólum. Tillagan var felld með 27 atkvæðum gegn 26.
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, greindi frá því í kjölfarið að tillaga um að gjaldfrjálsar tíðavörur væru tryggðar í skólakerfinu væri komin í farveg í ráðuneyti hennar.