fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

„Þriðja bylgjan“ að skella á Landspítalann – Tíu inniliggjandi og þrír á gjörgæslu

Heimir Hannesson
Miðvikudaginn 30. september 2020 19:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alls eru nú tíu inniliggjandi á sjúkrahúsi vegna Covid-19. Fjölgaði þeim um tvo í dag. Af þessum tíu eru þrír á gjörgæslu. Þetta kom fram í frétt RUV um málið. Þar sagði einnig að meðalaldur þeirra sem nú væru inniliggjandi væri 50 ár.

Fyrr í dag sagði DV frá því að 33 hafi greinst með kórónaveiruna. Rétt tæpur helmingur þeirra var ekki í sóttkví. Það er þó betra hlutfall en verið hefur í þessari „þriðju bylgju,“ og af fyrri orðum sóttvarnayfirvalda að dæma ber því að fagna. Í upphafi þessarar bylgju var haft eftir Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni að von væri á fjölgun innlagna um það bil viku til tveimur eftir að fjölgunar á Covid-19 tilfellum varð vart. Sú fjölgun hefur nú raungerst.

Þrátt fyrir 50 ára meðalaldur á spítalanum eru langflestir smitaðra í hópnum 18-29 ára. Rímar það við sem áður hefur komið fram um að smitin virðast vera að dreifa sér á meðal yngri samfélagshópa þetta sinn. Þrátt fyrir að meðalaldur þeirra sem þurfa á innlögn á sjúkrahús að halda sé talsvert hærri en meðalaldur þeirra smituðu, er ljóst að meðalaldur sjúklinga á sjúkrahúsi er lægri nú en hefur verið. Sagði Páll Matthíasson forstjóri Landspítalans í viðtali við RUV: „Nú eru því tíu inniliggjandi og þrír á gjörgæslu. Af þeim sem eru smitaðir núna eru langflestir í aldurshópnum 18-29 ára eða nærri 170. Yngra fólk leggst nú á spítala en áður. „Meðalaldurinn er rúmlega fimmtugur. Þetta er fólk frá þrítugs upp í sjötugsaldur.“

Samkvæmt Covid.is eru nú 1.747 í sóttkví og 551 í einangrun. Nýgengi innanlandssmita er nú 140,7 á hverja 100.000 íbúa hér á landi. Hefur sú tala ekki verið hærri síðan um miðjan apríl, í lok fyrstu bylgjunnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Í gær

Snorri furðar sig á Byggðastofnun – Sagður gera lítið úr þeim sem ekki tala íslensku

Snorri furðar sig á Byggðastofnun – Sagður gera lítið úr þeim sem ekki tala íslensku
Fréttir
Í gær

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögreglan sleppir tveimur í morðmálinu á Suðurlandi

Lögreglan sleppir tveimur í morðmálinu á Suðurlandi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dönsk stjórnvöld búa sig undir stríð – Hyggjast þvinga fólk til að gegna herþjónustu

Dönsk stjórnvöld búa sig undir stríð – Hyggjast þvinga fólk til að gegna herþjónustu