„Átt þú barn á unglingsaldri? Vissir þú að á samfélagsmiðlum þrífast meðal annars lokaðir hópar unglinga þar sem ofbeldi er viðurkennt og jafnvel upphafið í gegnum raunveruleg myndbönd af vettvangi slíkra brota?“
Svona hefst myndband sem að birtist á Facebook-síðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, þar sem að foreldrar eru varaðir við ofbeldisefni sem að unglingar eru að senda sín á milli. Samkvæmt myndbandinu er lögreglan að verða vör við mikið af af slíku efni, sem sýnir oft alvarlegt ofbeldi.
„Vaxandi ofbeldismenning meðal unglinga er mjög alvarlegt vandamál og með því að horfa á þessi myndbönd, deila þeim eða senda þau á milli er barnið þitt að taka þátt í ofbeldinu og ýta undir það.“
Lögreglan telur mikilvægt að opna á umræðuna svo að auðveldara sé að bregðast við því þegar að svona mál koma upp.
„Í ljósi alvarleika þess sem við erum að sjá í þessum myndböndum og skelfilegra afleiðinga ofbeldis meðal unglinga í gegnum tíðina, finnst okkur hjá lögreglunni mjög brýnt að opna umræðuna og hvetja foreldra til að ræða þessi mál við börnin sín og styðja þau í að taka ekki þátt með því að horfa og deila heldur segja frekar frá svo hægt sé að bregðast við og hjálpa gerendum og þolendum.“
Lögreglan biðlar til fólks að standa saman gegn þessu ofbeldi, til þess að sporna við ofbeldishegðun ungs fólks.
„Stöndum saman í að vernda börnin okkar gegn ofbeldi og skaðlegum afleiðingum þess á líf og sálu ungs fólks og vinnum þannig gegn því að ofbeldi og ofbeldishegðun verði normalíseruð hjá kynslóðinni sem er að vaxa úr grasi.“
Hér má sjá myndbandið sem lögreglan birti
https://www.facebook.com/logreglan/videos/3370477229699418/