DV sagði frá því í vikunni að Arturas Leimontas hefði verið ákærður fyrir morð og að málinu hefði verið þinglýst í Héraðsdómi Reykjavíkur. Ákæran yfir honum var birt honum í júní á þessu ári, en var fyrst birt opinberlega í liðinni viku. Arturas er fimmtugur Lithái og sá látni 57 ára gamall landi hans. Í ákærunni á hendur Arturasi kemur fram að hann hafi, 8. desember síðastliðinn, að Skyggnisbraut í Úlfarsársdal í Reykjavík, slegið landa sinn ítrekað og sparkað í hann. Samkvæmt ákærunni hefur Arturas notað þungt áhald í árásinni og í kjölfarið kastað honum fram af svölunum. Fallið niður var um 7 metrar á steypta stétt og lést fórnarlambið af áverkum sínum. Mál Arturasar er eitt þriggja morðmála sem er nú til meðferðar í dómsölum landsins.
Í júní var karlmaður á sextugsaldri ákærður fyrir að bana sambýliskonu sinni í Sandgerði í lok mars. Málið vakti mikinn óhug enda var maðurinn ekki handtekinn fyrr en fjórum dögum eftir að tilkynnt var um andlát sambýliskonu hans. Maðurinn var dæmdur í gæsluvarðhald. Konan lést 28. mars og fór lögreglumaður á staðinn eins og venja er. Í fyrstu benti ekkert til þess að nokkuð saknæmt hefði átt sér stað, og staðfesti líkskoðun þá staðhæfingu lögreglumannsins. Það var ekki fyrr en 1. apríl, í kjölfar skoðunar réttarmeinafræðings, að grunur vaknaði um að maðurinn hefði átt þátt í andláti konunnar en skoðun réttarmeinafræðings leiddi í ljós áverka á hálsi hennar. Það mál er nú rekið í Héraðsdómi Reykjaness.
Maður á þrítugsaldri er svo ákærður fyrir að hafa banað móður sinni í Hafnarfirði í byrjun apríl. Málinu var þinglýst í byrjun júlí. Er maðurinn í ákærunni sagður hafa stungið móður sína í tvígang með hnífi. Í kjölfarið réðst hann að öðrum manni, skar hann í andlit og stakk í handlegg. Í sömu ákæru er ofsaakstur mannsins fyrir tveimur árum tekinn fyrir. Er hann þar sagður hafa ekið á 197 km hraða, með þrettán lögreglubíla á eftir sér.
Málin í Sandgerði og Hafnarfirði þóttu sérstaklega óhugnanleg enda komu þau bæði upp í miðju samkomubanni og hafði þá umræða um aukna hættu á heimilisofbeldi skapast vegna þjóðfélagsaðstæðnanna.
Þann 25. júní barst lögreglu og slökkviliði tilkynning um bruna í íbúðarhúsi við Bræðraborgarstíg 1 á horni Vesturgötu. Þrír létust í brunanum, einn lést við að stökkva út um glugga en hinir tveir inni í alelda húsinu. Nánast á sama tíma og fyrstu viðbragðsaðilar voru að mæta vegna brunans, var maður handtekinn við rússneska sendiráðið, þar sem hann lét ófriðlega. Sá maður var daginn eftir úrskurðaður í gæsluvarðhald þar sem hann situr enn. Ennþá hefur ákæra ekki verið gefin út, en áður hefur komið fram að grunur leikur á að hann hafi hellt bensíni á gólf jarðhæðar hússins og lagt eld að. Þeir látnu voru allir pólskir ríkisborgarar.
Að þrjú morðmál séu í gangi í dómskerfinu og enn eitt í rannsókn, er mjög óvenjulegt á Íslandi. Hér á landi eru að meðaltali um tvö morð framin á ári og árin 1998, 2003, 2006 og 2008 voru engin morð framin. Fórnarlömbin í málunum fjórum sem nú eru til meðferðar eru sex talsins. Þrír Pólverjar, tveir Íslendingar og einn Lithái. Langalgengast er að þeir sem fundnir eru sekir um morð hljóti 16 ára dóm, þó dæmi séu um annað. Þannig hlaut til að mynda morðingi Birnu Brjánsdóttur 19 ára fangelsisdóm fyrir morðið á Birnu og alvarlegt fíkniefnabrot sem kom upp við morðrannsóknina.
Ef gengið er út frá því að mennirnir fjórir sem sæta nú ýmist morðákæru eða rannsókn fái allir 16 ára fangelsisdóm og reynslulausn á eðlilegum tíma, má gera ráð fyrir að þeir muni dvelja samanlagt í 42 ár í fangelsum landsins.