Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu Þórólfs Guðnasonar, sóttvarnarlæknis, um að loka skemmtistöðum og krám á höfuðborgarsvæðinu tímabundið í fjóra daga og með deginum í dag og til og með mánudeginum eða 18.-21. september. Þetta kemur fram á vefsíðu Stjórnarráðsins.
„Þetta er gert til að sporna við útbreiðslu COVID-19. Reglugerð heilbrigðisráðherra þessa efnis hefur þegar tekið gildi.“
Lokunin tekur til kráa og skemmtistaða í Reykjavík, Mosfellsbæ, Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi, Kjósarhreppi og á Seltjarnarnesi.
Staðir sem eru skráðir sem veitingahús eða kaffihús mega þó halda áfram starfsemi á þeim grundvelli en kráar- og skemmtistaðastarfsemi er óheimil.